störf þingsins.
Herra forseti. Ég ætla örstutt að bregðast við ummælum sem komu fram snemma í umræðunni í ræðu hv. þm. Álfheiðar Eymarsdóttur. Hún vék að blaðamannafundi sem ráðherrar atvinnumála, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og nýsköpunar-, iðnaðar- og ferðamálaráðherra, héldu á mánudaginn þar sem þau kynntu áform og aðgerðir í því að draga úr óþarfareglubyrði á málefnasviðum ráðuneyta sinna. Hv. þm. Álfheiður Eymarsdóttir tók reyndar þannig til orða að verið væri að afregluvæða fjármálakerfið sem er einhver misskilningur vegna þess að þau málefnasvið sem heyra undir þessi tvö ráðuneyti eru ekki það sem við tölum venjulega um sem fjármálakerfið, sem eru þá bankar, starfsemi fjármálastofnana og annað þess háttar. Þær aðgerðir sem þessir tveir hæstv. ráðherrar boðuðu til snertu ekki með neinum hætti það sem við tölum venjulega um sem fjármálakerfi. Þess vegna var ræða hv. þingmanns að þessu leyti afskaplega villandi og má ætla að hún hafi í einhverjum efnum byggt á annaðhvort misskilningi eða því að hún hafði ekki kynnt sér nákvæmlega hvað þarna var til umræðu.
Þessir tveir ráðherrar kynntu áform í þeim efnum sem ganga út á að draga úr óþarfareglubyrði á málefnasviði sínu og vonandi taka aðrir ráðherrar til hendinni á sínum sviðum vegna þess að staðreyndin er sú að þó að við getum verið sammála um að mikilvægt sé að skýrar og ákveðnar leikreglur gildi um starfsemi í atvinnulífinu getur óþarfareglubyrði líka verið til þess fallin að hamla eðlilegri atvinnustarfsemi, nýsköpun, starfsemi smárra og meðalstórra fyrirtækja (Forseti hringir.) og gert einstaklingunum erfitt fyrir að njóta krafta sinna á sviði atvinnulífsins.