viðbótarsamningur við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Lýðveldisins Norður-Makedóníu.
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hluta hv. utanríkismálanefndar um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu viðbótarsamnings við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Lýðveldisins Norður-Makedóníu. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Jóhannsdóttir, Ólöfu Hrefnu Kristjánsdóttur og Ágúst Má Ágústsson frá utanríkisráðuneytinu.
Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á viðbótarsamningi við Norður-Atlantshafssamninginn sem er frá 4. apríl 1949. Viðbótarsamningurinn varðar aðild Lýðveldisins Norður-Makedóníu sem gerður var í Brussel 6. febrúar á þessu ári. Samkvæmt ákvæðum samningsins öðlast hann gildi þegar allir aðilar Norður-Atlantshafssamningsins hafa tilkynnt ríkisstjórn Bandaríkjanna, sem er vörsluaðili samningsins, um staðfestingu sína á honum. Í kjölfarið mun framkvæmdastjóri NATO bjóða ríkisstjórn Norður-Makedóníu að gerast aðili að Norður-Atlantshafssamningnum.
Ég vil fara stuttlega yfir aðdraganda þessa viðbótarsamnings. Lýðveldið Norður-Makedónía gerðist sjálfstætt undir nafninu Makedónía 8. september 1991 en var áður, eins og menn þekkja, hluti Júgóslavíu. Vegna andstöðu Grikkja við nafn ríkisins og höfnun viðurkenningar heitisins bauð Atlantshafsbandalagið ríkinu aðild að Friðarsamstarfinu svokallaða árið 1995 undir heitinu Fyrrum Júgóslavíulýðveldið Makedónía og hefur það starfað með bandalaginu undir því heiti allar götur síðan. Ríkinu var síðan boðið til undirbúningsviðræðna um hugsanlegt aðildarferli og umbætur árið 1999 en þá strax lá fyrir að leysa yrði ágreining um nafnið áður en til aðildar kæmi.
Stjórnvöld í Aþenu og Skopje náðu samkomulagi um nafnið Norður-Makedónía og í kjölfar þess samþykktu utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins að bjóða ríkinu inngöngu í bandalagið. Ríkið greiðir sjálft kostnað við aðlögun eigin varna að samræmdu varnarkerfi bandalagsins og er ekki gert ráð fyrir að núverandi aðildarríki þurfi að breyta eigin varnaráætlunum, auka útgjöld til varnarmála eða bera á nokkurn hátt viðbótarkostnað af inngöngu Lýðveldisins Norður-Makedóníu í NATO.
Við þetta fjölgar aðildarríkjum bandalagsins í 30 og hlýtur það að teljast ánægjulegt. Atlantshafsbandalagið hefur ávallt lagt áherslu á að stækkun þess leiði til aukins stöðugleika og öryggis í Evrópu og ýti enn frekar undir þá lýðræðislegu þróun sem orðið hefur í nýju aðildarríkjunum. Ég fagna fyrir mitt leyti þessu nýja aðildarríki í NATO.
Meiri hlutinn leggur til að málið verði samþykkt og undir það skrifa, fyrir utan þá sem hér stendur, hv. þingmenn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Álfheiður Eymarsdóttir, Ásgerður K. Gylfadóttir og Logi Einarsson. Nefndarmennirnir Bryndís Haraldsdóttir og Gunnar Bragi Sveinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.