150. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2019.

viðbótarsamningur við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Lýðveldisins Norður-Makedóníu.

146. mál
[15:41]
Horfa

Frsm. minni hluta utanrmn. (Rósa Björk Brynjólfsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti minni hluta utanríkismálanefndar vegna tillögu til þingsályktunar um staðfestingu viðbótarsamnings við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Lýðveldisins Norður-Makedóníu. Eins og formaður utanríkismálanefndar rakti er verið að leita heimildar Alþingis til staðfestingar á viðbótarsamningi við Norður-Atlantshafssamninginn frá 4. apríl 1949 um aðild Lýðveldisins Norður-Makedóníu að bandalaginu sem gerður var í Brussel 6. febrúar sl.

Eins og við vitum öll hefur aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu ávallt verið umdeild. Því miður hefur þjóðin aldrei verið spurð né fengið tækifæri til að láta í ljós skýra afstöðu sína um aðild að bandalaginu með þjóðaratkvæðagreiðslu. Ljóst er, a.m.k. í hugum margra, að bandalagið er löngu hætt að skilgreina sig sem eingöngu varnarbandalag og hefur tekið að sér verkefni sem fara út fyrir upprunalegan tilgang þess. Minni hluti utanríkismálanefndar, sem ritar undir þetta nefndarálit, telur ekki réttlætanlegt að stækka bandalagið frekar að svo stöddu, jafnvel þó að tekið sé tillit til breyttrar stöðu Norður-Makedóníu frá lokum kalda stríðsins. Þrátt fyrir að tekist hafi langþráð og gott samkomulag milli Grikkja og Norður-Makedóníumanna í apríl sl. um nafn landsins eftir áratuga deilur þeirra á milli er það álit minni hlutans að það ágæta samkomulag leiði ekki sjálfkrafa til aðildar að Atlantshafsbandalaginu þrátt fyrir náið samstarf beggja aðila frá 1995.

Við þessa staðfestingu fjölgar aðildarríkjum bandalagsins í 30 og bendir minni hlutinn á að sterk öfl hafi ríkra hagsmuna að gæta í því að Atlantshafsbandalagið stækki. Er þar sérstaklega um að ræða vopnaframleiðendur, enda eru mörg af mestu vopnaframleiðslulöndum heims aðildarríki bandalagsins og leggja á móti ríkar skyldur á herðar aðildarríkjum sínum varðandi framlög til vígbúnaðar og hermála.

Að auki má benda á að skömmu fyrir aldamót breytti Atlantshafsbandalagið stefnu sinni á þann hátt að það beitir sér í auknum mæli utan landamæra sinna. Þar má nefna beina og óbeina þátttöku í styrjöldum og skærum í Afríku og Asíu. Afleiðingar þessara hernaðaríhlutana hafa því miður reynst skelfilegar fyrir íbúa viðkomandi landa og eiga þessi stríðsátök þátt í mikilli fjölgun fólks á flótta undan stríðsátökum og afleiðingum þeirra undanfarin ár.

Það er rétt að minna á að fjöldi fólks á flótta vegna stríðsátaka, nauðungar, fátæktar og afleiðinga stríðsátaka hefur aldrei verið meiri en á síðasta ári, eins og tölur gefa til kynna, 70 milljónir manna.

Fulltrúar minni hlutans árétta í nefndarálitinu þá stefnu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs að Ísland eigi að standa utan hernaðarbandalaga og hafna vígvæðingu. Ég held að það sé kunnugt flestum sem hér eru inni og þeim sem hlýða á að það er stefna hreyfingarinnar að hagsmunum Íslands sé best borgið með úrsögn úr bandalaginu. Það er kannski ekki hægt að hafa eina skoðun á því að það sé jákvætt skref að fallast á að það sé gott fyrir þróun öryggismála í heiminum að framlengja lífdaga hernaðarbandalagsins NATO eða stækka það. Þvert á móti ber okkur öllum að vinna að því að leggja hernaðarbandalög niður, gæta friðar, stöðugleika og öryggis í heiminum með lýðræðislega uppbyggðum svæðum og alheimsstofnunum. Stækkun NATO sem slík er ekki jákvætt innlegg í þá þróun sem vænlegast væri að vinna að á sviði öryggismála í Evrópu og víðar. Það væri heldur gert með styrkingu alþjóðastofnana á borð við Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE), Evrópuráðið og öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.

Það má líka spyrja ýmissa spurninga um það hver þróunin hefur verið innan raða Atlantshafsbandalagsins á undanförnum árum með breyttu landslagi í alþjóðastjórnmálum þar sem bandalagið hefur í raun breyst og þróast en svo sannarlega ekki dregið starfsemi sína saman. Það er líka áhugavert að sjá að þegar kalda stríðinu lauk fór Atlantshafsbandalagið í það formlega, á hinu pólitíska sviði, að finna sér ný verkefni enda um mikla hagsmuni að ræða, að gæta að því að bandalagið starfaði og stækkaði eins og við sjáum hér. Við höfum hins vegar ekki yfir sjálfsákvörðunarrétti annarra þjóða að ráða og getum ekki sagt öðrum ríkjum hvað þau eigi að gera, þau taka að sjálfsögðu þá ákvörðun með sjálfum sér, vonandi með lýðræðislegum hætti. Með þá afstöðu sem hér hefur verið rakin mun minni hlutinn sitja hjá við afgreiðslu á tillögu þessari.

Undir álitið rita Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Ari Trausti Guðmundsson.