150. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2019.

viðbótarsamningur við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Lýðveldisins Norður-Makedóníu.

146. mál
[15:47]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Sá sem hér stendur er formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins og á undanförnum ársfundum og vorfundum á þeim vettvangi hafa verið áheyrnarfulltrúar frá Norður-Makedóníu og þeir hafa sóst eftir því í mörg ár að komast í Norður-Atlantshafsbandalagið. Ég var beðinn um að færa íslenskum þingheimi kveðju þeirra á ársfundi NATO-þingsins sem haldinn var í London fyrir rúmri viku og þakka þann stuðning sem er við málið. Það er búið að bíða lengi og nú virðist það vera að gerast. Þeir vonuðust eftir því að þetta gengi allt upp í desember á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagslandanna en vegna kosninga á Spáni frestast það eitthvað. Ég ber bara kveðju fulltrúa Norður-Makedóníu frá ársfundi NATO-þingsins, þeir telja þetta gríðarlega mikilvægt mál fyrir sitt land og að þetta hafi líka verið til að tryggja ákveðinn frið og meiri samhug landanna á Balkanskaganum.

Ég vildi rétt koma því á framfæri.