150. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2019.

grænn samfélagssáttmáli.

31. mál
[16:41]
Horfa

Flm. (Halldóra Mogensen) (P):

Forseti. Ég mæli fyrir sameiginlegri þingsályktunartillögu Pírata og Samfylkingarinnar um grænan samfélagssáttmála. Sá loftslagsvandi sem við stöndum frammi fyrir hefur á undanförnum árum og áratugum farið sívaxandi og við okkur blasa ógnvænlegar staðreyndir og erfiðar ákvarðanir vegna þess að til að taka á vandanum þurfum við að kafa í rótina frekar en að meðhöndla einkennin eins og hefur tíðkast. Það er ekkert einfalt mál þegar ráðast þarf í rótina, sökudólgurinn er að miklu leyti hugmyndafræði sem hefur verið grunnur hönnunar stjórnkerfa okkar, hagkerfa og samfélaga. Okkar helstu og áreiðanlegustu vísindamenn búast við hækkun hitastigs sem geti haft gríðarlega afdrifaríkar afleiðingar fyrir mannkynið allt því að plánetan verður hér áfram en það sem loftslagsbreytingar munu leggja í rúst eru híbýli manna eða lífvænleiki plánetunnar. Yfirgnæfandi meiri hluti vísindamanna hefur brýnt fyrir okkur mikilvægi þess að stjórnvöld bregðist við af ábyrgð og bregðist við strax. Þetta er framlag okkar Pírata og Samfylkingarinnar í þá átt.

Í vor réð tilviljun því að þingmenn Pírata og Samfylkingarinnar lögðu fram þingsályktunartillögur um grænan sáttmála á sama tíma hvorir í sínu lagi. Ekki nóg með það heldur voru tillögur beggja flokka lagðar fram sama daginn þannig að það er greinilegt af þeirri skemmtilegu tilviljun að loftslagsmálin vega þungt hjá báðum flokkum og ef við eigum að ná árangri er samvinna á öllum stigum málsins nauðsynleg. Við höfum ákveðið að taka höndum saman í baráttunni gegn aðsteðjandi loftslagsvá með sameiginlegri þingsályktunartillögu um grænan samfélagssáttmála fyrir Ísland. Þær aðstæður sem við stöndum frammi fyrir kalla á samhentar aðgerðir og samvinnu allra aðila. Þingmálið um grænan sáttmála er svar við ákalli ungmenna um raunverulegar og nauðsynlegar aðgerðir gegn loftslagsvánni. Fyrirhuguð aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar dugar hreinlega ekki til, hana skortir nánar tilgreind og tímasett markmið og miklu meira fjármagn. Íslensk ungmenni hafa haldið áfram loftslagsverkföllum með ákalli um skýrari og markvissari aðgerðir. Aðrar Norðurlandaþjóðir eru komnar mun lengra og verja margfalt meiru af vergri landsframleiðslu í loftslagsaðgerðir. Ísland verður að skipa sér í forystusveit með öðrum Norðurlandaþjóðum, hlusta á vísindasamfélagið og ráðast í verulegar fjárfestingar í nauðsynlegum innviðum og uppbyggingu til að markmið sáttmálans nái fram að ganga í samræmi við viðmið milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál. Slík fjárfesting skapar ný tækifæri og verðmæti í nýju, breyttu og grænna hagkerfi.

Með tillögunni er lagt til að Alþingi álykti að fela forsætisráðherra að leggja fram tillögur um grænan samfélagssáttmála sem taki til allra sviða þjóðlífsins. Áður en slík tillaga verður lögð fram er lagt til hér að forsætisráðherra boði til þjóðfundar um „Græna Ísland“ vorið 2020 og að í kjölfar hans verði tillögur um grænan samfélagssáttmála unnar af fulltrúum allra stjórnmálaflokka í framtíðarnefnd forsætisráðherra, í samráði við umhverfis- og auðlindaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra, ásamt því að samdar verði tillögur um lagabreytingar. Framtíðarnefnd skili tillögum sínum til forsætisráðherra eigi síðar en 1. febrúar 2021.

Í tillögunni eru tilgreind sex markmið sem við eigum að ná fyrir árið 2030:

1. Ísland verði kolefnishlutlaust land, en þess skal gætt að aðgerðirnar bitni sem minnst á launafólki og jaðarsettum hópum.

2. Efnahagsleg framtíð landsins verði tryggð með sjálfbærni sem ófrávíkjanlegu skilyrði.

3. Teknir verði upp nýir mælikvarðar á velsæld í hagkerfinu, með hliðsjón af þörfinni á velmegun án vaxtar sem minnkar álagið á umhverfið.

4. Ráðist verði í verulegar fjárfestingar á nauðsynlegum innviðum og uppbyggingu til að markmið sáttmálans nái fram að ganga innan settra tímamarka, í samræmi við viðmið milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál.

5. Ísland verði í framvarðasveit ríkja þegar kemur að baráttunni gegn loftslagsvánni.

6. Stuðlað verði að auknu alþjóðlegu samstarfi og samtali um tæknileg málefni, sérfræðiaðstoð, vörur, þjónustu og fjármagn sem gæti nýst öðrum þjóðum við kolefnisbindingu og að ná kolefnishlutleysi.

Einnig er tekið fram að tryggja eigi framtíðarnefnd forsætisráðherra fjármagn til að ljúka vinnunni á tilsettum tíma. Þá verði tillögurnar leiðarvísir fyrir ríkisstjórn Íslands að markmiði um fullt jafnvægi í losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda á öllum sviðum þjóðfélagsins og í alþjóðlegri samvinnu Íslands við önnur ríki í baráttunni gegn loftslagsvánni.

Samvinna allra sviða samfélags, bæði innan lands og á alþjóðavettvangi, er það sem þarf til og er í takt við alvarleika vandans. Okkar sýn er sú að stjórnvöld og almenningur sameinist um allsherjarendurhugsun á grunnstoðum samfélagsins. Þar eru öll svið þjóðfélagsins undir; hagkerfið, matvælaframleiðsla, neysluvenjur, orkuframleiðsla og þannig mætti lengi telja. Hugmyndin að baki því að halda þjóðfund um „Græna Ísland“ snýst um að efla samheldni samfélagsins svo að við getum öll sameinast um þær breytingar sem nauðsynlegt er að gera í stjórnkerfum og hagkerfum okkar. Þeir þjóðfundir sem Ísland hefur hingað til haldið hafa verið undanfarar mikilla samfélagslegra breytinga og hafa skilað jákvæðum og mikilvægum breytingum, enda þurfa stjórnvöld stundum á dómgreind almennings að halda þegar kemur að því að fara í stórar og viðamiklar breytingar. Við megum samt ekki sitja aðgerðalaus á meðan stefnumótun um grænan samfélagssáttmála fer fram. Það þarf að útvíkka aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum og setja metnaðarfyllri markmið strax en til að það verði ekki eintóm plástrapólitík verðum við að ráðast í kerfisbreytingar og til að skapa samfélagslega sátt um þær þurfum við að fá alla með. Þannig getum við verið leiðandi í loftslagsmálum og fyrirmynd fyrir önnur lönd því að loftslagsváin er ekki vandamál einstakra þjóðríkja heldur vandi okkar allra og við verðum að taka höndum saman öll sem eitt til að breyta þessari þróun.

Losun gróðurhúsalofttegunda frá Íslandi eykst hratt og miðað við höfðatölu er hún mun meiri en í nágrannalöndum okkar. Þetta er áhyggjuefni og þróun sem þarf að snúa við strax til að draga úr alvarlegum afleiðingum hlýnunar og skapa sjálfbærara þjóðfélag. Gæta þarf að því þegar aðgerðir eru markaðar fyrir „Grænt Ísland“ að mannréttindi, félagsleg réttindi og almenn velferð verði ekki látin sitja á hakanum. Skynsamleg, raunhæf og sjálfbær nýting náttúru og auðlinda er undirstaða velsældar í því framtíðarsamfélagi sem við skiljum eftir fyrir börnin okkar og afkomendur. Þær aðgerðir og breytingar sem við leggjum upp með verða að taka mið af því að réttindum verði ekki misskipt. Áhersla verður að vera á að stjórnvöld og samfélagið allt setji sér markmið í sameiningu og vinni saman að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.

Við verðum að ráðast í grundvallarbreytingar á samfélaginu til að ná markmiðum okkar, markmiðum um kolefnishlutleysi, sjálfbærni og forystu í loftslagsmálum. Við þurfum að víkja frá úreltum hugmyndum um hagvaxtarhagkerfi sem gengur út á hámörkun neyslu. Við þurfum að setja velsæld í fyrsta sæti umfram hagvöxt, við þurfum að byggja upp nauðsynlega innviði sem minnka álag á umhverfið og við þurfum að taka velferðarkerfin okkar til endurskoðunar með það að markmiði að tryggja öllum mannsæmandi lífsskilyrði. Fyrsta skrefið í átt að því gæti orðið samþykkt nýs græns samfélagssáttmála.