150. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2019.

grænn samfélagssáttmáli.

31. mál
[16:53]
Horfa

Flm. (Halldóra Mogensen) (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka andsvarið og spurninguna. Fyrst og fremst er ég ekki sérfræðingur á því sviði, eins og margir hafa oft sagt í pontu, en ég hef alveg mínar hugmyndir. Sá fókus sem við erum búin að setja sem samfélag á stóriðju í gríðarlega langan tíma er afleiðing af þeirri hagkerfisstefnu eða hugmyndafræði sem liggur til grundvallar hagkerfinu okkar. Þetta er afleiðing af því og það er þessi hagvaxtaraukning sem er gríðarlega mikill fókus á í allri okkar nálgun í samfélaginu síðustu áratugina. Þetta er nokkuð sem við þurfum að fara að endurskoða. Ég held að það skipti hreinlega gríðarlega miklu máli að þessi hluti sé partur af vinnunni þegar sú vinna fer í gang að spyrja þjóðina hvernig hún sjái fyrir sér að samfélagið okkar líti út og hverjir hvatarnir í hagkerfinu okkar eigi að vera í framtíðinni til að koma til móts við og tækla þær loftslagsbreytingar sem við horfum fram á. Þær tillögur fara svo í áframhaldandi vinnu hjá framtíðarnefnd forsætisráðherra og einhverjar konkret lagabreytingartillögur koma úr þeirri vinnu.

Það er mikilvægt að þetta sé tekið með í þeirri vinnu en ég held klárlega að við þurfum að horfa til þeirrar tæknibyltingar sem er að eiga sér stað, við þurfum að leggja mun meiri áherslu á frumkvöðlahugsun og nýsköpun og fjarlægja í raun og veru hindranir og gera hvata til að fara að hugsa út frá samfélagslegri ábyrgð líka, að þegar nýjum fyrirtækjum er komið á fót og við erum að framleiða vörur eða þjónustu sé samfélagslega ábyrgðin til staðar.

Ég vona að þetta hafi ekki verið of óljóst, ég er að hugsa upphátt.