grænn samfélagssáttmáli.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir svarið. Ég tek undir með henni varðandi frumiðnað og frumvinnslu, við þurfum að færa okkur hraðar í átt að nýsköpun og frumkvöðlahugsun. Mig langaði líka til að spyrja hv. þm. Halldóru Mogensen að því sem kemur sömuleiðis fram á bls. 3 í greinargerð þingsályktunartillögunnar. Þar er til að mynda talað um að Bretland og Skotland hafi þegar lýst yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og ljóst að fleiri ríki muni fylgja í kjölfarið, Ísland sé þar engin undantekning. Ég tek heils hugar undir þetta og hef bæði talað um það og skrifað. Ég held að við eigum ekki að veigra okkur við að lýsa yfir neyðarástandi og eigum ekki að tala um það sem eitthvert óttatæki sem geri fólk hrætt heldur láta það efla okkur til dáða. Ég fagna því.
Þar rétt á eftir segir að yfirlýsing ein og sér dugi skammt án þess að stefnumótun sé gerð og talin upp nokkur atriði sem þarf að fara í breytingar á; skattkerfi, samgöngumál, húsnæðismál, matvælaframleiðsla og auðlindanýting sem þurfi að fara fram með sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Mig langar til að spyrja 1. flutningsmann þingsályktunartillögunnar um breytingar á skattkerfinu. Við vitum að á Íslandi eru margir sem sjá mikla meinbugi á og hafa andúð á hvers kyns skattkerfisbreytingum og sér í lagi ef skattkerfisbreytingar eiga að vera íþyngjandi aðgerðir. Á sama tíma geta breytingar á skattkerfinu verið afskaplega góðar í þá átt að efla ákveðna hegðun þannig að mig langar til að heyra hugmyndir 1. flutningsmanns þegar kemur að breytingum á skattkerfinu í átt til sjálfbærari þróunar.