150. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2019.

grænn samfélagssáttmáli.

31. mál
[17:14]
Horfa

Rósa Björk Brynjólfsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir framsöguna og óska honum til hamingju, líkt og hv. þingkonu Halldóru Mogensen, með þessa þingsályktunartillögu um grænan samfélagssáttmála. Það er margt verulega gott í henni um loftslagsmálin. Hv. þm. Logi Einarsson talaði um að við þyrftum allar hendur á dekk og ég er sannarlega sammála honum um það. Hann minntist aðeins á orð mín fyrr í þessari umræðu um skattkerfisbreytingar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi og ég held að ég og hv. þingmaður getum verið sammála um að ívilnandi skattkerfisbreytingar til að laða fram græna hegðun hjá fyrirtækjum, einstaklingum og stofnunum séu alltaf til góðs.

Mig langar aðeins til að spyrja hv. þingmann um neyðarástandið í loftslagsmálum og yfirlýsingum þar að lútandi. Eins og fram kemur í greinargerðinni hafa Bretland og Skotland þegar lýst yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og fjölmörg önnur þjóðþing, írska og velska þingið, og sömuleiðis margar borgir og bæir í Ástralíu og víðar. Mig langar til að spyrja hv. þingmann að því hverja hann telji vera ástæðuna fyrir því að fyrirstaða virðist ríkja almennt hér á landi gagnvart yfirlýsingum um að það ríki neyðarástand í loftslagsmálum.