grænn samfélagssáttmáli.
Herra forseti. Mér sýnist ekki einungis að hv. þingmaður hafi komið seint inn í umræðuna heldur mæti hann fullseint inn í samtímann. (BN: Nei.) Þetta er auðvitað búið að vera til umfjöllunar töluvert lengi og nærtækast er kannski að vísa í ágætisræðu hæstv. forsætisráðherra í sérstökum umræðum um velsældarhagkerfið. Það er enginn að tala um að taka út úr jöfnunni hluti eins og barnadauða og skólagöngu. Hins vegar getum við lagt annan mælikvarða á vöxt en bara framleiðsluaukningu. Það er t.d. til eitthvað sem heitir að búa til meiri gæði. Þau geta verið persónuleg en líka efnahagsleg. Ég held t.d. að það liggi nákvæmlega fyrir að lýðfræðilegar breytingar á þjóðinni okkar eru að verða þannig að þegar færri hendur standa undir framleiðslunni en áður var þurfum við beinlínis að fara að búa til meiri verðmæti og gæði úr vörunni sem við framleiðum. Ég reikna með því að þeir sem mest eru inni í þessu hugtaki, velsældarhagkerfi, séu líka að velta því fyrir sér hver hin virkilegu gæði okkar séu. Tóbak, viskí, bílar? Það er eitthvað sem karlar á okkar aldri hafa einblínt dálítið á í gegnum tíðina en ég held að umgengni við börnin og konuna og að elda góðan mat saman á laugardagskvöldi geti skilað töluverðri velsæld líka og sennilega meiri ef við hugsum hlutina til enda. Ég held að það sé margt mjög spennandi þegar kemur að hugmyndum um velsældarhagkerfi sem Nýsjálendingar og fleiri eru farnir að vinna eftir. (Gripið fram í.)