150. löggjafarþing — 24. fundur,  23. okt. 2019.

grænn samfélagssáttmáli.

31. mál
[17:30]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Hér eru áhugaverðar umræður um hagsæld, þjóðartekjur, meiri framleiðslu og ýmislegt svoleiðis. Það er áhugavert að skoða þær tölur í tengslum við t.d. vefinn tekjusagan.is sem hefur verið birtur og fer dálítið yfir hvernig tekjur mismunandi hópa þróast yfir ævi þeirra. Þar hefur komið vel fram að tekjur þeirra yngstu hafa dregist saman á undanförnum áratugum. Það segir okkur að umræðan sem var hérna áðan um að við verðum alltaf að stækka kökuna, að meiri framleiðsla á mann geri okkur öll ríkari, er ósönn. Það eru ýmsir aðrir hópar sem hafa líka dregist saman með tilliti til almennrar tekjuþróunar sem byggir á 69. gr. almannatryggingalaga.

Við þurfum að horfa aðeins dýpra inn á við og fram á við. Mig langar að fara yfir kafla sem gafst ekki tími til í framsöguræðunni en það er kaflinn um loftslagsbreytingar og nauðsyn græns sáttmála, tæknilegu útfærsluna varðandi áhrif hnatthlýnunar, með leyfi forseta:

„Áhrif hnatthlýnunar samkvæmt hófsömu mati Sameinuðu þjóðanna eru umtalsverð; 2°C hækkun markar hamfarir um allan heim, en það eru engan veginn efri mörkin ef ekki verður brugðist við. Við 2°C hækkun má búast við bráðnun ísþekju á pólunum, að hitaþensla heimshafanna leiði af sér sjávarmálshækkun upp á marga metra, að ferskvatnsskortur hafi áhrif á um 400 milljónir manna um heim allan, að margar borgir nálægt miðbaug verði óbyggilegar og að jafnvel í borgum í norðanverðri Evrópu muni þúsundir manna deyja úr hita hvert sumar. Hækki meðalhitinn um 3°C má búast við milljarði flóttamanna, varanlegum þurrki í suðurhluta Evrópu og að sexfalt stærra landsvæði brenni árlega í skógareldum en nú til dags. Við hækkun um 4°C má búast við þrjátíu- til sextíuföldun flóðaskemmda á láglendi og að skemmdir á heimsvísu nálgist sex hundruð billjarða dollara.“

Þetta er tala sem er ekki hægt að setja í neitt samhengi sem við skiljum en ég prófa að taka eina borg, New Orleans, 2005 í fellibylnum Katrínu. Það flæddi yfir 80% af borginni og áætlaður skaði er um 125 milljarðar dollara. Þetta er langt frá 600 billjörðum dollara, enda er þetta bara ein borg. Ef við tökum þetta yfir alla sjávarsíðuna, sjávarborgirnar, þar sem um helmingur mannkyns býr, innan við 200 km frá hafinu, sem er áætlað að muni tvöfaldast á næstu árum eða áratugum, komumst við kannski nálægt þessum 600 billjörðum dollara á þeirri einföldu margföldun. Í smásamhengi eru þetta 15.000 milljarðar kr. sem var skaðinn í New Orleans, rúmlega 15-föld fjárlög íslenska ríkisins í einu, á einum fellibyl.

Ég held aðeins áfram með greinargerðina:

„Ekki verður séð að hægt sé að leysa loftslagsvandann og koma í veg fyrir yfirvofandi hamfarir án gríðarlegra breytinga á hagkerfi heimsins. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál reiknast til að verja þurfi 2,5% af heimsframleiðslu til loftslagsmála á ári til ársins 2035 til að halda hlýnun innan við 1,5°C.“

Þetta er gríðarlega mikilvægt því að við stefnum mjög auðveldlega í áttina að 1,5°C hækkun. Það er eiginlega óhjákvæmilegt miðað við núverandi aðstæður. Sú breyting, 1,5°C í hækkun, er ásættanleg en aukaleg hækkun umfram það sem sést í núverandi módelum, hver gráða umfram það eins og ég rakti áðan, veldur ákveðnum margföldunaráhrifum í því hver skaðinn verður.

Hér er talað um hamfarir og hamfarahlýnun en við verðum að skilja hvað það þýðir. Í samhengi þeirra sem hafa gaman af tölum er talan hérna, t.d. 600 billjarðar dollara. Það er ekki verið að tala um hamfarir á þann hátt endilega að mannkynið þurrkist út. Vissulega verður mörgum lífverum útrýmt af því að þær eru mun staðbundnari en mannveran en breytingar á mannlegu samfélagi verða svo gríðarlega miklar og kostnaðarsamar að að sjálfsögðu væri best ef ekki þyrfti að gera neitt. Bara dæmið um New Orleans sýnir okkur mögulega kostnaðinn ef þetta verður algengara. Fólk getur hugsað um þetta í því tilviki að þegar lofthitinn eykst og hafið hitnar líka þenst það einmitt út. Það þenst mismikið út eftir því hvar maður er. Það er mismikil hækkun á hafinu eftir því hvar maður er á hnettinum en gríðarlega mikill mannfjöldi, hluti af mannlegu samfélagi, býr einmitt við hafið. Það er mjög auðvelt að sjá tenginguna þarna á milli, það er mjög auðvelt að sjá módelin eins og þau eru núna miðað við núverandi þróun sem stefnir bara upp á við. Ef ekkert verður gert verður þetta niðurstaðan. Þess vegna er svo gríðarlega mikilvægt að bregðast við núna til að koma í veg fyrir þennan skaða. Þetta er framtíðarskuld sem við erum að búa til ef við grípum ekki til aðgerða. Og skuldin er rosaleg.

Ég hef verið að senda inn spurningar um þann áætlaða kostnað sem Ísland kemur til með að þurfa að standa undir bara miðað við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem við höfum undirgengist að undanförnu varðandi t.d. Kyoto og Parísarsamkomulagið. Það er óheppilegt að til að mynda aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar sé ekki með þann kostnað á hreinu. Það er algjörlega nauðsynlegt að sá kostnaður sé fyrirsjáanlegur þótt hann sé ónákvæmur, á bilinu 5–20 milljarðar á ári höfum við t.d. heyrt í umhverfis- og samgöngunefnd frá gestum, mig minnir að það hafi verið Veðurstofan frekar en Umhverfisstofnun. Hvað um það, einhverjir af þessum aðilum sem komu og kynntu fyrir okkur stöðu loftslagsmála á Íslandi nefndu upphæðina. Þar var talað um 5–20 milljarða mögulegan kostnað af alþjóðlegum skuldbindingum okkar og það er kostnaður sem við viljum að sjálfsögðu koma í veg fyrir með því að ná markmiðunum. Þannig spörum við okkur í rauninni þá skuld sem við byggjum upp ef við gerum ekki neitt.

Það eru vonbrigði með aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar að þó að aðgerðirnar sem slíkar séu margar mjög góðar eru þær ekkert metnar að umfangi, kostnaði eða áhrifum, ekki neitt. Það á víst að koma í næstu útgáfum. Ég hlakka til að sjá þær og því fyrr, þeim mun betra. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að byrja á því sem fyrst og afgreiða þessa þingsályktunartillögu og byrja strax á vinnunni þannig að það séu skýr skilaboð til ríkisstjórnarinnar frá Alþingi.

Síðasta atriðið sem ég vildi minnast á sem hefur verið talað aðeins um áður er alþjóðleg samvinna. Í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:

„Meðal þeirra er innleiðing loftslagsákvæðis í fríverslunar-, fjárfestingar-, varnarmála- og samstarfssamninga sem Ísland gerir við önnur ríki og ríkjasambönd.“

Þessir samningar eru okkar besta tæki til að ná árangri í þeim málum því að þetta er hnattrænt vandamál. Ef einhver ríki eru að draga lappirnar er hægt að fá þau til samstarfs með viðskiptasamningum og þessum varnarmála- og samstarfssamningum. Ef eitthvert ríki dregur lappirnar er það kostnaður fyrir öll hin sem við viljum að sjálfsögðu koma í veg fyrir. Það býr til ákveðna mismunun í þessu samstarfi ef einhverjir skila ekki sínum hluta.

Það er þannig með Ísland að vissulega erum við í góðri stöðu en við skilum þeim markmiðum sem t.d. Kyoto-samkomulagið lagði fyrir okkur. Af því að við erum í samfloti með öðrum þjóðum í Evrópu náum við aftur á móti markmiðunum af því að hinir eru búnir að gera betur. Hvernig er það að vera í forystu og leiðtogahlutverki í rauninni í umhverfismálum? Það er greinilega ekki rétt miðað við það. Áskoranirnar eru gríðarlega stórar, verkefnið er mikilvægt og afleiðingarnar mjög augljósar ef fólk vill skoða þær gaumgæfilega.