lyfjalög.
Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lyfjalögum sem fjallar að stærstum hluta til um lausasölulyf, þ.e. að heimila með undanþágum og með leiðbeiningum frá Lyfjastofnun að lausasölulyf verði seld í almennum verslunum. Reyndar komu fram í ræðu hv. þm. Unnar Brár Konráðsdóttur svolítið önnur markmið en bara þau sem eru rædd í greinargerðinni, til að mynda sá þáttur sem hún nefndi í andsvari um aðgengi fólks í dreifbýli að lyfjum sem er vissulega verðugt markmið að reyna einhverjum hætti að tryggja. En á hinn bóginn á ég voðalega erfitt með að komast fram hjá því að lyf, sama hvaða nafni þau nefnast, eru virk efni sem eru framleidd með það í huga að hafa áhrif á tiltekna líkamsstarfsemi. Það eru eiginlega engin lyf sem geta ekki haft umtalsverðar aukaverkanir. Það þarf að mínu viti, a.m.k. mjög oft, að vera með einhvers konar leiðbeiningu við sölu á lyfjum, kannski sérstaklega með tilliti til aukaverkana og milliverkana og einnig með tilliti til ofskömmtunar lyfja. Það á í rauninni við um öll þau lyf sem eru talin upp í greinargerð frumvarpsins en þar eru talin upp lyf eins og verkjalyf, bólgueyðandi gigtarlyf, Paracetamol, ofnæmislyf. Þetta á við um þau öll.
Ég skil mjög vel markmið frumvarpsins, að tryggja aðgengi fyrir þá sem kannski hafa það ekki í nægilega ríkum mæli núna. En það aðgengi má ekki vera á kostnað öryggis neytenda, á kostnað öryggis þeirra sem myndu kaupa lyfin. Það þarf til að mynda ekkert rosalega stóran skammt af Paracetamol til þess að stórskaða sig, valda mjög alvarlegum lifrarskemmdum, sérstaklega ef menn taka stóran skammt í einu. Það þarf ekki stóran skammt af bólgueyðandi gigtarlyfjum eins og Íbúfen og Diclofenac, sem eru nefnd sérstaklega í greinargerð, til að fá alvarlegar magabólgur, jafnvel magablæðingar og jafnvel herða á nýrnabilun og hjartabilunareinkennum o.s.frv. Ofnæmislyfin eru nánast öll líkleg til þess að geta valdið jafnvægisleysi, sérstaklega með milliverkunum við önnur lyf. Nú er markmið frumvarpsins að bæta aðgengi. Þá velti ég því fyrir mér hvort það þyrfti ekki með einhverju móti í frumvarpi eins og þessu eða í aðdraganda þess að það er samið að ræða til að mynda þann möguleika að tryggja að við söluna fari fram eða að það væri a.m.k. möguleiki á upplýsingagjöf eða fræðslu til þess sem kaupir. Ég held að það sé afar mikilvægt og það er það fyrirkomulag sem við erum með í dag í lyfjaverslunum. Lausasölulyf eru seld í lyfjaverslunum þar sem er boðið upp á einhvers konar aukaupplýsingar, ýmist frá lyfjatækni eða lyfjafræðingi.
Ég sé það hins vegar alveg og get ímyndað mér að hv. flutningsmenn hafi velt því fyrir sér að það gæti verið umhendis fyrir sérstaklega minni verslanir og minni sölustaði í dreifbýli að vera með lyfjafræðinga. Það væri nú kannski svolítið bratt. En það er nú með mannlífið og allt sem í því er að sum vandamál þarf bara að leysa. Ég held að því miður nái þetta frumvarp ekki, alla vega ekki eins og það er skrifað núna, alveg utan um þær lausnir. En það kann vel að vera að þær séu þarna úti. Ég nálgast þetta kannski svolítið úr annarri átt en flestir aðrir þingmenn vegna fyrri starfa minna. En ég hef heyrt líka þær raddir, eins og komu fram í andsvari hv. þm. Guðmundar Inga Kristinssonar, að það ætti frekar að herða löggjöfina með tilliti til lausasölulyfja. Ég er nú kannski ekki alveg á því en þau sjónarmið eru uppi í læknastétt að það ætti að gera það. Mér finnst sjálfum til að mynda, sérstaklega vegna þess að sá skjólstæðingahópur sem ég hef í gegnum tíðina sinnt mest er einmitt sá hópur sem er í mestri hættu á að fá aukaverkanir af lyfjum, þótt ekki væri nema bara vegna þess að hann tekur svo mörg lyf og svo margir möguleikar eru á milliverkunum, að lausheldni í lausasölu geti skaðað sérstaklega þann hóp, sérstaklega skaðað eldra fólk.
Ég mun reyna eftir megni að taka á þessum málum með opnum huga í hv. velferðarnefnd. En mér finnst frumvarpið eins og það liggur fyrir ekki vera þannig að ég geti fellt mig við það. Það kann að vera að það komi þannig umsagnir að menn sjái ljósið í því og kann að vera mögulegt að gera einhverjar breytingar á frumvarpinu. En ég ítreka það sem ég sagði áðan að svona finnst mér þetta ekki ganga.