lyfjalög.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég skil hans sjónarmið. En ég bendi á að í frumvarpinu er lagt til að ákvæði 2.–4. mgr. 24. gr. laganna, sem nú eru í gildi, eigi einnig við um þá sem fá þessa undanþágu þannig að Lyfjastofnun fái upplýsingar um magn lyfja sem er selt og að neytendur fái nauðsynlegar upplýsingar. Það er síðan útfærsluatriði hvernig þetta verður gert. Það er spurning hvort rétt sé að taka það upp í velferðarnefnd að setja þau skilyrði hreinlega inn, það gæti vel verið leið. Eða þá einfaldlega að útfæra það betur í nefndaráliti sem nefndin afgreiðir frá sér. En Alþingi samþykkti 2017 þingsályktun um lyfjastefnu til 2022 og eitt af meginmarkmiðum hennar er að tryggja aðgengi allra landsmanna að nauðsynlegum lyfjum. Mér fannst þetta einfaldlega ríma fullkomlega við þá stefnu og ítreka þá staðreynd að Ísland stendur mjög mörgum Evrópuríkjum að baki hvað varðar frelsi í sölu á lausasölulyfjum í almennum verslunum. Þetta er gott mál að mínu mati og ég vona svo sannarlega að hv. þingmaður skoði það að veita því framgang í velferðarnefnd.