150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

aðgerðir Íslandsbanka.

[10:33]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Hæstv. forseti. Ég spyr hæstv. fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins um viðhorf hans til starfsemi Íslandsbanka þessa dagana. Nú hafa birst fréttir sem í fyrstu virtust hljóta að hafa verið eins konar markaðsbrella eða aprílgabb í október, en það mun ekki vera. Ríkisbankinn Íslandsbanki hyggst nú hlutast til um dagskrá fjölmiðla og mannaráðningar á fjölmiðlum og beita í því skyni fjármagni sínu sem eðli máls samkvæmt er í raun ríkisfé og fjármagn viðskiptavina bankans. Nú hljóta allir að vera þeirrar skoðunar að mikilvægt sé að gætt sé að jafnrétti á fjölmiðlum eins og á öðrum vinnustöðum. En er það að mati hæstv. fjármálaráðherra eðlilegt að ríkisbanki nýti afl sitt í þvingunarskyni og fari í þá vegferð, eins og það er kallað af hálfu bankans, og fleiri áhugamál bankans munu vera á sjóndeildarhringnum, þar sem m.a. fjölmiðlar eiga á hættu að fylgi þeir ekki stefnu bankans í því sem bankinn ætlast til verði þeim refsað fjárhagslega? Fjölmiðillinn Vísir fjallar um þetta mál í dag og þar kemur fram að bankinn vilji ekki eiga viðskipti við fyrirtæki þar sem sé of hátt hlutfall karla eða einungis karlar í vinnu. Aðspurður um hvort bankinn muni þá eiga viðskipti við til að mynda bifreiðaverkstæði þar sem séu hugsanlega eingöngu karlar starfandi er það sagt vera til skoðunar á rekstrarsviði bankans.

Er þetta ekki hálfóhugnanleg þróun að mati hæstv. fjármálaráðherra, sama hvað líður markmiðunum, að ríkisfyrirtæki, banki, ákveði að beita afli sínu og fjármagni til að þvinga fram ákveðna niðurstöðu? Og er ekki sérstaklega óhugnanlegt þegar það beinist að fjölmiðlum og banki ætlar að fara að hlutast til um það hvernig fjölmiðlar séu reknir?