aðgerðir Íslandsbanka.
Herra forseti. Ég deili þeim áhyggjum sem hæstv. fjármálaráðherra lýsti en er ekki að verða tímabært að fara yfir eigendastefnu ríkisins í bönkunum í ljósi þeirra uppákomna sem við höfum horft upp á að undanförnu, þessa nýjustu og svo áform um risastórar höfuðstöðvar Landsbankans o.s.frv.? Ég velti því upp hvort það sé ekki orðið tímabært.
Í öðru lagi, herra forseti, bendi ég á að á þessu eru mjög margar hliðar. Það er margt sem er til þess fallið að valda áhyggjum í þessu. Tökum dæmi af vinsælustu útvarpsstöð landsins, Bylgjunni. Þar vill svo til að flestir starfsmenn yfir daginn eru karlar þótt konur séu að sjálfsögðu til viðtals þar. Ef ríkisbankinn ákveður að hætta að auglýsa á þessari tilteknu útvarpsrás væri hann væntanlega ekki að þjóna hagsmunum almennings, eigenda bankans, með því.
Er ekki aðalatriðið, hæstv. fjármálaráðherra, að banki sem vill sýna af sér samfélagslega ábyrgð lækki vexti, að Íslandsbanki lækki til að mynda eitthvað af þeim 400–500 gjaldskrárliðum sem hann birtir á heimasíðu sinni?