samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og áhugann á framkvæmdum í vegamálum. Varðandi inngang hv. þingmanns vil ég segja að þó svo að Reykjavíkurborg hafi haft uppi einhverja stefnu og það hafi birst þessum hv. þingmanni með þessum hætti þá er það svo að í samskiptum ríkis og sveitarfélaga í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins setjum við öll spil á borðið, finnum ólíkar lausnir, fléttum þær saman til að taka á þeim vanda sem við þekkjum, að umferðartími er allt of mikill. Það sem hingað til er búið að gera í þessum áformum, sem birtast í samgöngusáttmálanum og samkomulaginu við sveitarfélögin, er miðað við þá þekkingu sem best er til í landinu og af ólíkum aðilum innan Vegagerðar, sveitarfélaganna, verkfræðistofanna og slíkra þátta; búið að flétta því saman í hvaða röð framkvæmdirnar eiga að birtast í þeim tilgangi að leysa úr vandanum.
Ég dreg hins vegar enga dul á það að þegar einhverjar framkvæmdir verða á svonefndum meginleiðum verður umferðin auðvitað að fara eitthvert annað á þeim tíma. Það er engin önnur lausn til en að flétta þær aðgerðir saman þannig að búið sé að leysa eitthvað áður en kemur að þeim vanda. Þess vegna er verið að reyna að stytta þann tíma þar sem framkvæmdirnar eiga að eiga sér stað. Við höfum sennilega tvö ár, í því félagi sem hér á að stofna, þar sem allir þeir sem best þekkja til koma saman og reyna að leysa úr þeim spurningum sem hv. þingmaður er með. Ég er ekki sérfræðingur í vegagerð, samgönguverkfræði eða samgöngumálum. Ég efast um að nokkur þingmaður í salnum sé með þá sérþekkingu. En við erum með fólk sem er með slíka þekkingu og er að fara að vinna að þessu á næstu tveimur árum.