samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið en ég er með lausnina. Í skýrslu Vegagerðarinnar frá 2018 segir:
„Ofanbyggðarvegur frá Kópavogi til Hafnarfjarðar er eina leiðin sem hugsanlega gæti létt umferð af Reykjanesbraut og Hafnarfjarðarvegi. Við að falla frá hugmyndum um Ofanbyggðarveg um Garðabæ verður öll umferð til framtíðar um núverandi vegi og þar með eykst enn mikilvægi þess að halda þjónustustigi á þeim háu.“
Því miður eru Garðbæingar sennilega búnir að eyðileggja þessa möguleika en þó ekki alveg. Við setjum bara göng undir Garðabæ, tengjumst við Kópavogsbraut og við erum búin að redda málunum. Byrjum á þessu. Þá erum við komin með annan veg þegar við förum að taka Reykjanesbrautina upp í Hafnarfirði og Garðabæ. Við skulum líka átta okkur á því að þarna fara 50.000 bílar um á sólarhring. Ef ekki er hægt að gera göng til að redda því erum við í slæmum málum.