samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Virðulegur forseti. Ég efa það ekki að þeir sérfræðingar okkar sem best þekkja til á þessu sviði kanni alla möguleika á því hvernig best sé að leysa úr þessum vanda. Ég minni á að hluti af þeirri lausn sem er verið að flétta saman er að við munum nýta okkur fjölbreyttari samgöngumáta þar sem það á við, þar á meðal almenningssamgöngur sem auðvitað eru í stakk búnar til að flytja fleira fólk um á sama tíma en fjölskyldubíllinn, sérstaklega ef það er bara einn í honum. Við sjáum líka fyrir okkur á næstu árum að menn muni deila bílum í meira mæli. Við vitum líka að borgarlínuverkefnið er fyrst og fremst ný akrein sem tekur þar af leiðandi við hinum sjálfkeyrandi bílum sem sjálfsagt verða fyrst í almenningssamgöngum. Ég bind miklar vonir við að þetta verkefni leysi vandann sem við höfum staðið frammi fyrir í langan tíma og við hjá ríkinu erum að koma að til að leysa.