Veggjöld.
Virðulegi forseti. Í upphafi kjörtímabils kemur fram í frétt RÚV að Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segi engar áætlanir uppi um veggjöld á helstu leiðum til og frá Reykjavík. Hann vísar einnig í að ekki sé stafkrókur í stjórnarsáttmála um veggjöld. Síðastliðið vor var fjallað um ýmiss konar útfærslur á veggjöldum í fjármálaáætlun og í samgönguáætlun þar sem ýmist átti að leggja á veggjöld í kringum höfuðborgarsvæðið eða ekki. Nýjustu vendingar eru þær að þann 11. september sl. kom einnig fram í frétt RÚV að veggjöld yrðu tekin upp á helstu stofnæðum höfuðborgarsvæðisins til að fjármagna samgönguframkvæmdir. Nú rétt rúmum mánuði síðar er aftur fallið frá hugmyndum um gjaldtöku á stofnleiðum út frá höfuðborgarsvæðinu í endurskoðaðri samgönguáætlun.
Virðulegi forseti. Hringlandaháttur af slíku tagi er dálítið óþolandi. Ég tel að hæstv. ráðherra skuldi okkur skýringu á þeirri hringavitleysu í stefnu stjórnvalda. Þess vegna vil ég spyrja ráðherra nokkurra spurninga: Er það stefna ríkisstjórnarinnar að leggja á veggjöld innan höfuðborgarsvæðisins? Er það stefna ríkisstjórnarinnar að leggja á veggjöld á öll jarðgöng á Íslandi? Ef ekki, hvaða jarðgöng sleppa við gjaldtöku? Er það stefna stjórnvalda að veggjöld eigi að standa undir kostnaði af almennum samgönguframkvæmdum og viðhaldi?