150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

innheimta skatta.

[11:02]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Við höfum á undanförnum árum fjármagnað betur eftirlitsaðila á þessu sviði. Við höfum tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi í stórauknum mæli, gert upplýsingaskiptasamninga til að komast að rótum skattsvika eftir því sem hægt er. Þær tölur sem er verið að nefna núna eru auðvitað áætlaðar en þær ættu ekki að koma neinum á óvart vegna þess að það hefur verið í umræðunni lengi að á Íslandi sé svart hagkerfi sem erfitt sé að uppræta. Spurningin er þessi: Hvaða aðferðir eru bestar til að ná árangri í þessum efnum?

Ég geld varhuga við því að menn gangi út frá því að með einhverri einni aðgerð sé hægt að uppræta alla svarta starfsemi og fá sem viðbótartekjur í ríkissjóð 80 milljarða án þess að það bitni á öðrum tekjustofnum einhvers staðar annars staðar. Ég held að hið flókna samhengi þessara hluta myndi birta dálítið aðra mynd.

Svarið við spurningunni um hvort ekki sé mikilvægt að hafa vel fjármagnaðar og öflugar stofnanir er afdráttarlaust já og ég tel að dæmin sýni að við höfum fylgt eftir þeirri stefnumörkun með fjármagni eftir því sem þörf krefur. Nýjasta aðgerðin sem ég hef mælt fyrir á þinginu, eftir að hafa fært innheimtuna yfir til skattsins, til að auka skilvirkni í innheimtu skatta eftir því sem hægt er, er að við leggjum það til að tollur og ríkisskattstjóri verði í sömu stofnuninni til að hún verði enn betur í stakk búin til að sinna þeim hlutverkum sem þessum aðilum er gert að sinna að lögum.

Þetta vildi ég segja um þennan mikilvæga málaflokk og það er rétt sem hv. þingmaður segir, (Forseti hringir.) þetta er m.a. spurning um að menn séu að keppa á jafnréttisgrundvelli.