150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

innheimta skatta.

[11:05]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra kærlega fyrir þetta svar. Við erum að vísu ekki sammála um hvað er mikið, þ.e. hvað er mikið að leggja til þeirra stofnana sem hafa eftirlit og innheimtu með höndum. Það voru einar 120 millj. kr. í fyrra, ef ég man rétt, sem ríkið lét af hendi rakna í þetta, sem er ekki stór upphæð.

Hæstv. fjármálaráðherra misskildi mig kannski aðeins áðan vegna þess að ég talaði ekki um að ná 80 milljörðum. Ég talaði um að það væri gott að ná 10% af þessu. Hitt er svo annað mál að maður hefur á tilfinningunni að skatteftirlit á Íslandi beinist eingöngu að smáum atvinnurekendum, jafnvel einyrkjum, sem eru hundeltir út af einhverju smotteríi meðan stærri fyrirtæki virðast sleppa óáreitt. Slíkt er náttúrlega ekki góð latína, hæstv. ráðherra, vegna þess að í smáu starfseminni eru vaxtarbroddarnir. Ég brýni hæstv. ráðherra enn til þess að auka nú hressilega við til embættis skattrannsóknarstjóra sem t.d. er ekki með neina einustu krónu, ef ég man rétt, (Forseti hringir.) í aukningu núna á fjárlögum eða þá að samþykkja tillögu okkar Miðflokksmanna, sem mun örugglega koma fram, um þessa styrkingu við 2. umr. fjárlagafrumvarps.