150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

lax- og silungsveiði.

251. mál
[11:30]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Í 2. gr. er breyting á 44. gr. laganna þar sem tekinn er út sá aðili í nefndinni sem er tilnefndur af Hæstarétti Íslands og sá sem er skipaður án tilnefningar, þ.e. sem ráðherra velur sjálfur, þeir aðilar þurfa að hafa réttindi héraðsdómara. Þarna er sett inn að í staðinn fyrir Hæstarétt Íslands tilnefni Hafrannsóknastofnun einn af þessum einstaklingum. Hverjar voru forsendurnar fyrir því í upphafi að Hæstiréttur Íslands tilnefndi einn nefndarmann? Við þurfum að vita það til að geta metið það í samanburði við Hafrannsóknastofnun. Hver eru sjónarmiðin þar? Jafnvel þó að Hafrannsóknastofnun væri bætt við má spyrja: Hvers vegna er verið að taka Hæstarétt út? Er það eðlilegt að Hæstiréttur tilnefni einn aðila sem ráðherra skipar og að sá aðili, þó að hann væri ekki sá sem ráðherrann ræður algjörlega sjálfur, hafi þá fræðiþekkingu sem héraðsdómari hefur? Ef það á að taka hann út úr nefndinni verðum við að fá alveg skýrt hvers vegna það hafi upprunalega verið sett inn að Hæstiréttur skyldi skipa og að sá aðili hefði þessa sérþekkingu.