lax- og silungsveiði.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir forgöngu um að auka minnihlutavernd í þeim félögum sem skylduaðild gildir um hér á landi. Það er auðvitað verulegt frávik frá stjórnarskrárvörðum mannréttindum manna um að fá að standa utan félaga og þess vegna er mikilvægt að hlúð sé að minni hlutum í veiðifélögum. Ég velti hins vegar fyrir mér hvort þetta, eins og lagt er upp með í 1. gr. frumvarpsins, leiði ekki miklu frekar til minnihlutaræðis sem er ekki hótinu skárra en þær aðstæður þegar hagsmunir minni hluta eru fyrir borð bornir.
Ég vil nefna dæmi. Hér er fjallað um að einn aðili megi ekki hafa, í krafti eignarhalds, meira en 30% atkvæða í veiðifélagi þar sem sjö eða fleiri lögbýli njóta atkvæðisréttar. Menn geta sett upp einhvers konar dæmi um slíkt og þar er auðveldlega hægt að reikna sig niður á þá niðurstöðu að sá sem fer með flest atkvæði endi með 30% atkvæðavægi þótt hann fari með jafnvel yfir 80% eignarhlutdeild. Ég vil a.m.k. aðeins heyra hjá ráðherra hvort hann telji ekki mikilvægt að hv. atvinnuveganefnd skoði þetta sérstaklega.
Þá vil ég líka spyrja ráðherrann hvort ekki sé þörf á að skoða miklu nánar 1. mgr. 40. gr. núgildandi laga, þau ákvæði hennar sem snúa að skilgreiningu á jörðum, hvað sé jörð í skilningi laxveiðilaga. Þar er nefnilega mjög takmörkuð (Forseti hringir.) skilgreining er lýtur að lögbýlishugtakinu.