150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

lax- og silungsveiði.

251. mál
[11:44]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir jákvæð viðbrögð. Þessu tengt og aðeins í framhaldinu spyr ég um skilgreiningu á jörðum í 40. gr. núgildandi laxveiðilaga. Mér þykir óhjákvæmilegt að benda aðeins á að í greinargerð finnst mér örlítið villandi farið með skilgreiningu á þeim sem njóta atkvæðisréttar í laxveiðifélögum. Í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:

„Eigendur eða ábúendur jarða sem njóta veiðiréttar fara með eitt atkvæði hver á félagsfundi veiðifélags samkvæmt 40. gr. lax- og silungsveiðilaga.“

Það er svo sem satt og rétt en þá verða menn að hafa í huga að í 40. gr. laxveiðilaganna segir:

„Með jörð í framangreindum skilningi er átt við þær jarðir, þar á meðal eyðijarðir, sem fullnægðu skilyrðum laga til að teljast lögbýli við gildistöku eldri jarðalaga, nr. 65/1976.“

Atkvæðisrétt í veiðifélögum hafa ekki aðrir landeigendur en þeir sem eiga land sem telst lögbýli. (Forseti hringir.) Nú eru aðstæður þannig að menn eru að skipta út jörðum og búa til frístundajarðir og annað. Þeim fylgir arður og veiðiréttindi en þá ekki atkvæði. Þetta tel ég mjög brýnt að hv. nefnd skoði.