lax- og silungsveiði.
Forseti. Mér sýnist eftir að hafa fylgst með umræðunum og farið yfir frumvarpið sjálft að það snúist um þrjú atriði. Eitt er að tekin verði út milliganga ríkisins hvað varðar kostnað sem fellur til og eflaust er það bara gott mál. Ráðherrann færði rök fyrir því og ég mun skoða betur í nefndinni milligöngu ríkisins um innheimtu kostnaðar. Í öðru lagi er það minnihlutavernd. Það er áhugavert. Ég talaði við fólk í matsalnum áðan og eftir að hafa hlustað á ræðu hv. þm. Bjarkeyjar Gunnarsdóttir heyrist mér tilfellið vera að erlendir efnamenn séu farnir að kaupa það mikið upp að áhrif þeirra innan núverandi lagaramma séu orðin meiri en innlendra efnamanna. Það er gott að setja minnihlutavernd en það er áhugavert að hún kemur ekki fyrr en innlendu efnamennirnir eru farnir að missa áhrif sín til erlendra efnamanna. Í þriðja lagi sá ég þegar ég skoðaði frumvarpið sem var upprunalega lagt fram á sínum tíma að þá átti Hæstiréttur að skipa tvo aðila í nefndina og Landssamband veiðifélaga einn. Þessu var breytt í meðförum þingsins þannig að ráðherra skipar sjálfur einn án tilnefningar en nú á alfarið að taka Hæstarétt út úr þessu máli sem og að það þurfi að hafa hæfi á við héraðsdómara. Þegar svoleiðis gerist, þegar þingmaður Sjálfstæðisflokksins leggur til að takmarka aðkomu Hæstaréttar, hringja bjöllur hjá mér af því að við höfum séð þegar kemur að skipan dómara og svoleiðis að Sjálfstæðisflokkurinn eða einhver ákveðin klíka innan hans virðist vera í ákveðnu stríði, mætti ég segja, við þá klíku sem er innan dómstóla. Það eru klíkur á báðum stöðum og báðir aðilar vilja stjórna dómskerfinu okkar. Það er smávægilegt atriði um skipan í þessa nefnd en um leið og ég sé svona hringja bjöllur. Hvers vegna? Þá þarf að vera skýrt að þetta sé á málefnalegum forsendum. Upprunalega átti Hæstiréttur að skipa tvo, þeim var fækkað niður í einn og nú á að fjarlægja hann með öllu. Þá kemur að fiskifræðilegri þekkingu, ef hún væri komin inn væri hægt að kveða á um að sá sem ráðherra skipar þyrfti að hafa fiskifræðilega þekkingu. Það þarf ekki nauðsynlega að fjarlægja algjörlega þá reynslu sem var talin nauðsynleg að tveir aðilar hefðu. Það mætti fækka aðilunum niður í einn, halda því að Hæstiréttur skipi áfram einn aðila en bæta við að hinir aðilarnir skuli hafa þá fiskifræðilegu reynslu, þeir sem Landssamband veiðifélaga og ráðherra skipa. Maður getur náð báðum markmiðum.
Mig langar að spyrja ráðherra hvort hann sé eitthvað á móti því að halda því inni að Hæstiréttur skipi í nefndina eða a.m.k. að einn þeirra hafi reynslu á við héraðsdómara en samt sem áður megi koma að hinum sjónarmiðunum um að aðrir í nefndinni þurfi að hafa fiskifræðilega þekkingu þannig að báðum sjónarmiðum verði náð. Ef það er ekki hægt hringja aftur bjöllur í hausnum á mér um að þetta sé partur af ákveðnu stríði milli þeirra sem vilja ráða yfir dómsvaldinu í landinu.