150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

CBD í almennri sölu.

285. mál
[16:31]
Horfa

Flm. (Halldóra Mogensen) (P) (andsvar):

Forseti. Það er einfalt svar við því og það er nei, þetta hefur ekkert með vímuefni að gera. Þetta snýst um að gera CBD, sem er eitt af virku efnunum í kannabisplöntunni, aðgengilegt. CBD er virkt efni sem veldur ekki vímu. Þetta hefur því ekkert með vímuefni að gera en mögulegar ástæður fyrir því að verið er að slá þessu öllu saman í umræðunni eru að ég hef nýverið lagt fram og mælt fyrir þingmáli um afglæpavæðingu vímuefna og þar af leiðandi verið spurð út í bæði málin á sama tíma og svo er náttúrlega heilbrigðisráðherra að leggja fram aftur þingmál um neyslurými. Kannski er það ástæðan fyrir því að fólk slær þessu saman, en það mál sem ég mæli fyrir núna hefur ekkert með vímuefni að gera.