150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

CBD í almennri sölu.

285. mál
[16:34]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. flutningsmanni Halldóru Mogensen fyrir ræðuna og mig langar að ræða aðeins um þessa tillögu. Ég held að hugsunin í því sem hv. þingmaður rakti í ræðu sinni, að CBD sé ekki vímuefni og því eigi það ekki að vera skráð sem slíkt, sé rétt. Ég er hins vegar ekki kominn alveg þangað sem hv. þingmaður er, að við eigum að fara alla leið yfir í að heimila efnið í almennri sölu. Það er mikilvægt að við höfum það í huga að í dag er hægt að fá lyf sem innihalda CBD, framleidd eftir sömu ströngu skilyrðum og lyfjaframleiðendur og lyfjastofnanir út um allan heim krefjast, gegn svokölluðum undanþágulyfseðli á Íslandi og ég held að það sé óþarflega umhendis. Það væri í raun alveg nægilega stórt skref að ákveða hreinlega að lyfið væri lyfseðilsskylt eins og mörg önnur lyf sem eru með virk efni.

Þingmaðurinn nefndi í ræðu sinni, sem er rétt, að lyfið hefur tiltekin lyfhrif og ég myndi kannski setja athugasemd við það að þau eru ekki alveg óumdeild. En þau eru sannarlega einhver og þess vegna held ég að það sé skynsamlegt að fara varfærnari leið eins og ég nefndi. Ástæðan er kannski mest sú að ég lít svo á að þetta sé eins og hvert annað lyf og það er notað við sjúkdómseinkennum og alls konar kvillum. Það er hins vegar ekki mikið til af gagnrýndum rannsóknum sem sýna fram á notagildi lyfsins eða gagnsemi en þær eru þó einhverjar. Það eru ekkert rosalega umfangsmiklar rannsóknir sem hafa verið gerðar. Þó að ég skilji hug þingmannsins og flutningsmanna að vilja gera efnið aðgengilegt þá held ég að það sé líka í því ákveðin neytendavernd að ætlast til þess að þetta efni eins og önnur virk efni gangist undir sömu skilyrði og önnur lyf sem við notum við sjúkdómum og þurfi þess vegna að vera í jafn ströngu framleiðsluferli og slík lyf. Það væri a.m.k. skynsamlegt fyrsta skref áður en við færum alla leið í þessu efni. Það kann að vera flötur á því fyrir velferðarnefnd að finna einhvern snúning á þessu sem hægt er að vinna með. En ég tel a.m.k. að þetta væri skynsamlegra skref en að fara alla leið í almenna sölu.