CBD í almennri sölu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar. Þingmaðurinn kom inn á að lyfjalög væru að vissu leyti íþyngjandi og að sumu leyti eru þau það náttúrlega vegna þess að við viljum það. Við viljum að þeim sem þurfa að nota lyfin sé vernd í þeim lögum og að þau nái að halda utan um framleiðslu og sölu lyfja. Það er kannski einmitt þess vegna sem ég er fyrst og fremst að hugsa þetta. Þingmaðurinn nefndi að þótt það væru ekki miklar aukaverkanirnar væru þær nokkrar og það eru líka milliverkanir sem er erfitt, skulum við segja, að ná almennilega utan um svona í fyrsta kastinu. Lyf með þessu virka efni er þegar framleitt og til reiðu. Sennilega er hægt með breytingu á íslenskum reglugerðum að stíga það skref þegar í dag að heimila lyfið. Ég held að ef fólk kallaði eftir lyfinu myndi það alla vega svara þeirri eftirspurn.
Það er annað í þessu sem ég er hræddur við vegna þess að ég hef mjög oft unnið með skjólstæðingum í gegnum tíðina sem hafa verið að taka svokölluð lausasölulyf og það er almenna reglan að það eru ekki mjög strangar framleiðslureglur um þau. Það er mjög oft þannig að samsetning þeirra og innihald er óvíst miðað við t.d. þau lyf sem fara í gegnum strangara vinnsluferli og stöðlunarferli. Ég er þeirrar skoðunar að þangað til að við erum með meiri upplýsingar um CBD í læknisfræðilegum tilgangi eigum við að fara varlega og stíga eitt skref í einu.