150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

CBD í almennri sölu.

285. mál
[16:43]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Halldóru Mogensen fyrir spurningarnar. Mér er kunnugt um þær vangaveltur sem hv. þingmaður bar upp um hvort það væri yfirleitt löglegt að rækta iðnaðarhamp á Íslandi og í strangasta skilningi lagatúlkunar er það líklega ekki. Það getur alla vega orkað tvímælis, skulum við segja, hvort það er löglegt. En ég er sammála þingmanninum um það að virka efnið CBD eigi að taka út fyrir sviga. Ég er sammála þingmanninum hvað það varðar vegna þess að það myndi greiða götu til að mynda skráningar lyfja sem innihalda þetta efni og þá værum við að skrá lyf sem innihalda þetta efni eftir þeim leikreglum sem þegar gilda um framleiðslu lyfja.

Varðandi það sem hv. þingmaður spurði um áðan, um hvað væru lyf og hvað ekki lyf, er það miklu stærri umræða og hægt að fara út um víðan völl í því. Taka lyfja eins og lýsis — og takið eftir að ég segi lyfja eins og lýsis — getur í sumum tilfellum verið á við lyfjatöku, þ.e. nánast er verið að taka það vegna sjúkdómsástands eins og t.d. D-vítamínskorts sem aftur hefur áhrif á marga fleiri sjúkdóma. Mörkin þarna á milli eru því ekki alveg eins og eitthvert strik.

Ég vona að þetta mál fái góða umfjöllun í nefndinni og það verður spennandi að sjá hvort hægt verður að ná einhvers konar lendingu í því en ég get ekki fellt mig við frumvarpið eins og það liggur fyrir í dag.