150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

sveitarstjórnarlög.

66. mál
[16:46]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011, um fjölda fulltrúa í sveitarstjórn, á þskj. 66. Fyrsti flutningsmaður, Jón Gunnarsson, er fjarverandi og því var ég kallaður inn af varamannabekknum, enda einn af meðflutningsmönnum málsins, en auk okkar tveggja eru flutningsmenn hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson og Bergþór Ólason.

Eins og kemur fram í greinargerð hefur frumvarp þessa efnis verið lagt fram tvisvar sinnum áður, á 148. og 149. löggjafarþingi, en ekki náð fram að ganga.

Sveitarfélög eru stjórnvöld og falla þar með í flokk handhafa framkvæmdarvalds samkvæmt 2. gr. stjórnarskrárinnar. Þau eru því hluti af stjórnsýslukerfinu og ber þeim að fylgja almennum reglum sem gilda um starfsemi stjórnvalda og framkvæmd stjórnsýslu. Samkvæmt 1. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar skulu sveitarfélög ráða sjálf málefnum sínum eftir því sem lög ákveða. Með þessu orðalagi, að þau ráði sjálf málefnum sínum, er vísað til sjálfsstjórnar sveitarfélaga. Í sjálfsstjórn þeirra felst m.a. að íbúar sveitarfélags hafi lýðræðislegan rétt á að kjósa stjórn sveitarfélagsins í almennum kosningum.

Kveðið er á um fjölda sveitarstjórnarmanna í 1. mgr. 11. gr. sveitarstjórnarlaga. Gildandi lagaákvæði hefur þannig áhrif á fjölda fulltrúa í sveitarstjórnum. Mikilvægt er að standa vörð um sjálfsstjórnarrétt sveitarfélaga og tryggja að sú lýðræðislega hugsun sem býr að baki sveitarstjórnarstiginu og reglum um kosningar til sveitarstjórnar, að sveitarstjórnarfulltrúar séu fulltrúar íbúa sveitarfélagsins, endurspegli á virkan hátt vilja íbúanna.

Hugmyndafræðilegur grundvöllur 1. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar er að tryggja rétt íbúa á staðbundnum svæðum til að ráða sjálfir tilteknum málefnum án afskipta ríkisvaldsins. Því telja flutningsmenn frumvarps þessa rétt að sveitarfélög geti sjálf ráðið fjölda aðalmanna í sveitarstjórn. Hafa beri eftirfarandi í huga, eins og fram kom í athugasemdum við 2. mgr. 11. gr. í greinargerð frumvarpsins sem varð að gildandi sveitarstjórnarlögum, með leyfi forseta:

„Mikilvægt er þó einnig að hafa í huga að það stjórnskipulag sem frumvarpið gerir ráð fyrir að gildi um starfsemi sveitarfélaga gerir ekki ráð fyrir mjög stórum sveitarstjórnum enda byggt á því að sveitarstjórnin sjálf taki allar meiri háttar ákvarðanir um rekstur og stjórnsýslu sveitarfélagsins og beri á þeim ábyrgð.“

Verði frumvarp þetta að lögum verður sveitarstjórnum í sjálfsvald sett að ákveða fjölda aðalmanna í sveitarstjórn í samþykktum sínum innan þeirra einu marka að fulltrúarnir verði aldrei færri en fimm og ekki fleiri en sjö þar sem íbúar sveitarfélags eru færri en 2.000. Breytingarnar sem lagðar eru til á 2. mgr. 11. gr. laganna fela því í sér að verði frumvarpið að lögum verður sveitarfélagi aldrei skylt að fjölga fulltrúum í sveitarstjórn þótt íbúafjöldi taki breytingum.

Þá má nefna að sveitarfélögin hafa sjálfstæða tekjustofna og fjárveitingarvald innan ramma laga, samanber 2. mgr. 78. gr. stjórnarskrárinnar. Tekjur sveitarfélaga og svigrúm til að nýta þær eru lykilatriði þegar litið er til þess hvað sveitarfélögin geta tekið sér fyrir hendur sjálf, þ.e. að eigin frumkvæði, eins og t.d. að ákvarða fjölda aðalmanna í sveitarstjórn. Þess má geta að fjárhagsleg áhrif þessa frumvarps, nái það fram að ganga, á ríkissjóð eru engin.

Hæstv. forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpið gangi til hv. umhverfis- og samgöngunefndar til umfjöllunar.