sveitarstjórnarlög.
Forseti. Hér er kominn gamall kunningi, ég ætla ekki endilega að segja góðkunningi (Gripið fram í: Þetta er góður kunningi.) þar sem ég hef ekki haft sérstaklega góða reynslu af þessu máli í þau skipti sem það hefur komið hingað inn. Ég er alltaf jafn hissa á að þetta mál komi hér fram en aldrei eins og núna. Komið hefur fram í umræðum þegar það hefur verið lagt fram á öðrum tíma að kerfið eins og það er í dag sé ekki neitt sem ríkisvaldið hafi kokkað upp eða dregið einhverjar tölur upp úr hatti heldur sé það afurð umfangsmikillar vinnu sem farið var í með sveitarfélögunum þar sem niðurstaðan varð sú sem við búum við í dag. Það var ekkert síður fyrir hugmynd frá sveitarfélögunum sjálfum sem sett var upp ákveðin tafla um að íbúafjöldi réði einfaldlega því hversu margir fulltrúar væru í sveitarstjórnunum þannig að ekki þyrfti að karpa og takast á um það reglulega heldur yrði það nokkurn veginn eins og klukka, ef íbúafjöldi ykist ákveðið mikið fjölgaði fulltrúum í sveitarstjórnum. Ég fékk ekki upp úr hv. flutningsmönnum þá, en þá var framsögumaður annar en hv. þm. Óli Björn Kárason, hvaða greiningarvinna byggi að baki því frumvarpi sem væri betri en það samstarf sem fram fór við sveitarfélögin á sínum tíma.