150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

sveitarstjórnarlög.

66. mál
[16:58]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég held að núna sé akkúrat rétti tíminn til að leggja frumvarpið fram. Það er gott innlegg í samhengi við umfjöllun nefndarinnar eða þingsins er varðar framtíðarstefnumótun í málefnum sveitarfélaga. Menn ættu að ræða þetta samhliða, að afhenda valdið til sveitarfélaganna og að þau hafi það. Helsta gagnrýnin sem ég hef haft á fyrirliggjandi tillögur um stefnumótun í málefnum sveitarfélaga er að menn skuli láta sig dreyma um að þvinga sveitarfélög með lögum til að sameinast. Ég geri mér alveg grein fyrir því að meiri hluti sveitarfélaga, stærri sveitarfélögin, hafi verið því fylgjandi að það yrði lögþvinguð aðgerð að sameina sveitarfélög, að það mættu ekki vera færri en 1.000 íbúar o.s.frv. Ég er algjörlega á móti því. Ég vil að íbúarnir sjálfir hafi frumkvæðið og vinni að því að sameinast öðrum sveitarfélögum ef þeir telja það þjóna hagsmunum sínum. Sveitarstjórnarmenn verða líka að hafa burði til þess í samvinnu við íbúa, umbjóðendur sína, að taka ákvörðun um það hvort og hvenær eigi að fjölga fulltrúum í sveitarstjórnum. Það er hins vegar skynsamlegt að tryggja a.m.k. að það sé einhver ákveðinn lágmarksfjöldi í sveitarstjórnum bara til að tryggja að það sé einhver lýðræðislegur vettvangur til að taka ákvarðanir.

Ég vona að við hv. þm. Kolbeinn Óttarsson Proppé séum a.m.k. sammála um að við látum það aldrei gerast að hér verði sveitarfélag með aðeins einn í sveitarstjórn.