sveitarstjórnarlög.
Herra forseti. Ég ætla að reyna að vera knappyrtur en ég tel mér eiginlega skylt að koma í ræðustól til að fara aðeins yfir aðdraganda þess að 11. gr. er eins og hún er í dag. 11. gr. eins og hún er er ekki afrakstur vinnu samráðshóps sem starfaði á vegum félags- og sveitarstjórnarráðuneytisins, eins og það hét þá. Þetta veit ég vegna þess að ég var í þeim vinnuhópi á þeim tíma ásamt ljómandi góðu fólki og þar var fólk sem myndi í dag teljast vera úr stjórnmálaflokkunum Samfylkingunni, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki. Þar náðist samkomulag um aðra grein en síðan varð að lögum og þar voru, ef eitthvað var, „harðari“ skilyrði sett um fjölda aðalmanna í sveitarstjórn. 11. gr. eins og hún er núna er því í raun einhvers konar málamiðlun sem var náð þegar málið kom til þingsins. Alla vega breytist greinin á leiðinni frá viðkomandi vinnuhópi og þangað til málið var klárað í þinginu og verður eins og hún er í dag.
Greinin eins og hún er gefur alveg nægjanlegt svigrúm fyrir sveitarstjórnir til að ákveða þann fjölda sem er í sveitarstjórn að mínu viti. Það sem meira er, ég tel að ekki sé skynsamlegt að fara niður fyrir þau mörk sem þarna eru, sérstaklega þegar horft er til þeirra verkefna sem sveitarfélögunum er treyst fyrir. Þau eru ærin og ég held að það sé beinlínis óskynsamlegt að ætla til að mynda að sjö manna sveitarstjórn í stóru sveitarfélagi eins og sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu geti séð um og annast öll þau verkefni sem hún á að annast. Ég er ansi hræddur um að ef menn veldu það myndi tvennt gerast, annars vegar að embættismenn í sveitarstjórnunum sæju í raun um alla raunverulega ákvörðunartöku og hins vegar að lýðræðið yrðu miklu minna vegna þess að þá þyrfti til að mynda í Reykjavík tugi þúsunda íbúa á bak við hvern kjörinn fulltrúa, ef ýtrustu tillögur eins og frumvarpið nefnir gengju fram. Ég geld varhuga við því og held að við ættum að gefa 11. gr. og sveitarstjórnarlögunum eins og þau eru núna dálítinn tíma til að lifa og starfa með þjóðinni áður en við förum að hræra meira því.