sveitarstjórnarlög.
Herra forseti. Vegna ummæla hv. þm. Ólafs Þórs Gunnarssonar vildi ég koma því á framfæri að þegar þetta mál fór í gegnum þingið á sínum tíma, árið 2011 ef ég man rétt, lögðumst við þingmenn Sjálfstæðisflokksins gegn nákvæmlega þessu atriði í málsmeðferð þannig að ekki var um að ræða einhvers konar málamiðlun við okkur, hvernig sem tillagan varð til. Þó að við styddum margvíslegar breytingar sem áttu sér stað í þessu lagasetningarferli greiddum við atkvæði gegn þessu tiltekna atriði. Það var einmitt á sömu forsendum og hv. þm. Óli Björn Kárason hefur lýst, við töldum að það ætti að vera ákvörðunaratriði sveitarstjórnar hvort farið væri út í fjölgun eða ekki. Þá vorum við auðvitað fyrst og fremst með í huga borgarstjórnina í Reykjavík. Við töldum að ef fyrir því væri pólitískur meiri hluti í viðkomandi sveitarstjórn væri mönnum í lófa lagið að taka slíka ákvörðun en það væri þá líka á ábyrgð viðkomandi sveitarstjórnar að útskýra hvers vegna það væri nauðsynlegt og hvaða tilgangi það þjónaði.
Málið hefur komið upp með reglulegu millibili á síðustu árum og það er engin launung að tilefni tillöguflutningsins í upphafi og þess ágreinings sem verið hefur um þessi efni voru áform í Reykjavík um fjölgun borgarfulltrúa úr 15 í 23. Sú breyting hefur gengið í gegn og er áhugavert að velta fyrir sér hvernig það hefur reynst. Því var haldið fram, þegar sú breyting var ákveðin, að það myndi ekki fela neinn tiltekinn kostnað í sér af því að varamenn væru hvort sem er svo virkir og það myndi breytast með fjölgun aðalmanna í borgarstjórn. Mér er til efs að sú sé raunin.