Ég sveitarstjórnarlög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Ármannssyni fyrir andsvarið. Ég verð að játa að það kom mér á óvart að Reykjavík skyldi velja að vera bara með 23 fulltrúa. Mér hefði ekki þótt óeðlilegt að þeir hefðu stigið stærra skref, fyrst þeir voru á annað borð að stíga þetta skref í samræmi við núgildandi lög. Talandi um það svigrúm sem sveitarfélögin hafa má benda á að sveitarfélagið Kópavogur hefur ítrekað fellt það að fjölga bæjarfulltrúum í 15 þrátt fyrir að heimildin í lögunum sé til staðar. Heimildir sveitarfélaganna eru þarna og ekkert af Kragasveitarfélögunum, sem öll hafa heimild út frá stærðarmörkunum í 11. gr., öll nema Seltjarnarnes og Kjós reyndar, til að fara upp í 15 fulltrúa, en ekkert þeirra hefur valið það. Þau hafa öll valið að vera í lægri tölunni, þ.e. 11. En á sama hátt hefur það einu sinni verið samþykkt í sveitarstjórn hér suður í Kópavogi að fara í sameiningarviðræður við sveitarfélögin þar fyrir sunnan og þá var m.a. stungið upp á því að það sveitarfélag gæti heitið Heiðmörk. Hefði það sveitarfélaga verið stofnað, þ.e. sunnan Fossvogs, hefðu íbúar þess verið í kringum 80.000. Þá hefðu að lágmarki þurft að vera þar 15 sveitarstjórnarfulltrúar og að hámarki 23. Ég verð að segja eins og er að mér hefði þótt það vera fullkomlega eðlileg stærð á sveitarstjórn fyrir svo stórt sveitarfélag.