150. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2019.

sveitarstjórnarlög.

66. mál
[17:12]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Herra forseti. Ég er meðflutningsmaður á þessu frumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum ásamt nokkrum öðrum ágætum hv. þingmönnum. Þetta mál gengur efnislega út á það að sveitarstjórnir ákveði í meginatriðum sjálfar hversu margir fulltrúar skuli vera í þeim, að það sé ekki ákveðið af ríkisvaldinu heldur ákveði það einungis stóra rammann. Þetta gengur þvert á sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaganna, þ.e. vilja íbúanna í sveitarfélögunum, um hversu marga fulltrúa þau telja sig þurfa að hafa í sveitarstjórnum. Verði frumvarp þetta að lögum verður sveitarstjórnum í sjálfsvald sett að ákveða fjölda aðalmanna í sveitarstjórn í samþykktum sínum innan þeirra einu marka að fulltrúarnir verði aldrei færri en fimm og ekki fleiri en sjö þar sem íbúar sveitarfélags eru færri en 2.000. Þannig er sveitarfélagi aldrei skylt að fjölga fulltrúum í sveitarstjórn þótt íbúafjöldi taki breytingum.

Neðst í greinargerðinni segir að fjárhagsleg áhrif ákvæða frumvarpsins á ríkissjóð séu engin. Ég held að fjárhagsleg áhrif gætu verið einhver, hvort sem er til aukningar á fjárútlátum sveitarfélaga eða til sparnaðar ef sveitarstjórnin ákveður að fækka fulltrúum í sveitarstjórnum. Einhverjir gætu þá hugsanlega fjölgað umfram þessi mörk ef vilji er til þess en ég held að ekki sé vilji til þess almennt. Það er ekki vilji til þess almennt meðal íbúa í landinu að auka við báknið. Maður heyrir utan að sér þegar maður talar við fólk að fólki finnst oft nóg um stærð báknsins. Ég skal ekki segja hvort nýleg fjölgun borgarfulltrúa Reykjavíkur úr 15 í 23 hafi tekist vel og auðvitað er lítil reynsla komin á það en þetta er aukning upp á tugi prósenta með tilheyrandi fjárútlátum. Fjárútlát borgarinnar hafa aukist með þessu og þetta kemur auðvitað einnig við önnur sveitarfélög sem hugsanlega þurfa að fjölga sínum fulltrúum í kjölfar þessara laga. Ég sé ekkert að því, enda er ég meðflutningsmaður á þessu frumvarpi, að ríkisvaldið sleppi svolítið höndunum af því að reyna að stjórna sveitarfélögunum og leyfi þeim bara að ákveða sjálf hversu marga fulltrúa þau telji þörf á að vera með í sínum sveitarstjórnum hvert og eitt. Það getur verið misjafnt. Menn geta haft ýmsar skoðanir á því en af hverju ekki að leyfa þeim að ákveða þetta sjálf? Ég veit vissulega að í núverandi lögum eru einhver mörk á því, það er eitthvert valbil, en hvað er að því? Við hvað eru menn hræddir við að leyfa sveitarfélögum að taka þessar ákvarðanir sjálf? Af hverju þurfum við alltaf á Alþingi að vita allt betur?

Við erum með tvö stjórnsýslustig. Hvers vegna ekki að leyfa þessu stjórnsýslustigi sem við köllum sveitarstjórnarstig að ákveða þetta sjálft? Við hvað eru menn hræddir? Þetta gæti leitt til sparnaðar. Þetta gæti leitt til einföldunar og nú á þeim tímum þar sem nokkrir stjórnmálaflokkar tala um að minnka báknið er ég svo aldeilis fylgjandi því að setja þetta bara í hendur sveitarstjórnarstiginu.