breyting á ýmsum lögum á sviði matvæla.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 361, mál nr. 318. Um er að ræða frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði matvæla, einföldun regluverks, Matvælasjóð og EES-reglur. Frumvarpið er samið í atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu.
Tilefni þess er í fyrsta lagi að einfalda regluverk sem gildir um matvælakeðjuna, í öðru lagi að setja á fót Matvælasjóð og í þriðja lagi að innleiða reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2017/625.
Í stjórnarsáttmála Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um ríkisstjórnarsamstarf og eflingu Alþingis kemur fram að átak verði gert í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings. Með vísan til þess er með frumvarpinu lagt til að felld verði brott lög nr. 55/1998, um sjávarafurðir, og lög nr. 96/1997, um slátrun og sláturafurðir. Ekki er talin þörf á því að hafa sérlög um framangreinda matvælaframleiðslu heldur gildi lög um matvæli nr. 93/1995. Með frumvarpinu er tryggt að sérákvæði sem eiga við um sjávarafurðir sem og slátrun og sláturafurðir verði með lítils háttar breytingum til einföldunar felld inn í lög um matvæli. Með þessum breytingum verður regluverk sem gildir um matvælakeðjuna einfaldað sem leiðir til þess að kerfið verður samræmdara, skilvirkara, einfaldara, aðgengilegra og samfelldara fyrir bæði atvinnulíf og almenning. Auk þess eru áðurnefndar breytingar til þess fallnar að stuðla að enn frekara matvælaöryggi og bættri neytendavernd.
Með frumvarpinu er einnig lögð til einföldun fyrir matvælafyrirtæki sem stunda fiskveiðar sem falla undir frumframleiðslu þannig að veiðileyfi á grundvelli laga um stjórn fiskveiða verður ígildi skráningar hjá Matvælastofnun. Í því felst að íþyngjandi krafa um útgáfu starfsleyfis framangreindra matvælafyrirtækja fellur niður.
Virðulegi forseti. Með þingsályktun nr. 40/149 um aðgerðaáætlun um matvælaöryggi og vernd búfjárstofna var ríkisstjórninni falið að hrinda í framkvæmd ýmsum aðgerðum sem miði að því að efla matvælaöryggi, tryggja vernd búfjárstofna og bæta samkeppnisaðstöðu innlendrar matvælaframleiðslu. Á meðal aðgerða er að settur verði á fót sjóður með áherslu á eflingu nýsköpunar í innlendri matvælaframleiðslu sem yrði til með sameiningu AVS-rannsóknasjóðs í sjávarútvegi og Framleiðnisjóðs landbúnaðarins. Með vísan til áðurnefndrar þingsályktunar er með frumvarpinu lagt til að settur verði á fót nýr sjóður með það hlutverk að styrkja aukna verðmætasköpun, framleiðslu, vinnslu og markaðssetningu matvæla úr landbúnaði og sjávarútvegi. Sjóðurinn ber heitið Matvælasjóður. Með frumvarpinu er lagt til að lög um Framleiðnisjóð landbúnaðarins, nr. 89/1966, verði felld úr gildi í árslok 2020 en sjóðurinn starfi allt það ár. Sama gildir um AVS-rannsóknasjóðinn. Fyrsta starfsár Matvælasjóðsins verður með þessu árið 2021. Í ákvæði til bráðabirgða við lögin er mælt fyrir um að skipa skuli stjórn fyrir Matvælasjóð við gildistöku laganna og að stjórnin skuli undirbúa starfsemi hans, þar með talið að setja honum stefnu. Með þessu gefst rúmur tími til að undirbúa starfsemi sjóðsins en þegar er raunar hafin vinna við þá stefnumótun í ráðuneyti mínu.
Nokkur samlegðaráhrif í rekstri hljótast af sameiningu þessara sjóða. AVS-sjóðurinn nýtur 216 millj. kr. framlags úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum ársins 2019 en af því eru sértekjur samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða um það bil 20 millj. kr. á ári sl. ár. Framleiðnisjóður er með 134 millj. kr. framlag úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum ársins 2019 og rekstrarkostnaður hvors sjóðs um sig er um 20 millj. kr. á ári en að því frágreindu, enda verði hagræði í rekstri af sameiningu sjóðanna, má gera ráð fyrir að sameiginlegt olnbogarými til stuðnings nemi um eða yfir 320 millj. kr. af þessum framlögum. Þá er einnig horft til þess að kanna hvort auka megi fjármagn til hins nýja sjóðs.
Mikil gerjun er í nýsköpun meðal matvælafyrirtækja og mörg dæmi eru um árangursríkt, þverfaglegt samstarf þeirra á milli. Vel skipulagður nýsköpunar- og þróunarsjóður með áherslu á verðmætasköpun í þróun og vinnslu matvæla úr landbúnaði og sjávarútvegi styður við þetta og stuðlar að bættri nýtingu fjármagns til framþróunar á þessu sviði. Veittur stuðningur getur til að mynda ýtt undir samstarf rannsóknaraðila við fyrirtæki sem getur skapað ný verðmæti. Því standa vonir til að með stofnun hins nýja sjóðs getum við sótt fram á þessu sviði.
Virðulegi forseti. Tilefni frumvarpsins er m.a. innleiðing á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 625/2017 frá 15. mars 2017 um opinbert eftirlit og aðra opinbera starfsemi sem miðar að því að tryggja að lögum um matvæli og fóður og reglur um heilbrigði og velferð dýra, plöntuheilbrigði og plöntuverndarvörur sé beitt og um breytingu og niðurfellingu á fjölmörgum reglugerðum Evrópuþingsins og ráðsins, sem og tilskipunum og ákvörðunum ráðsins. Rétt er að taka fram að reglugerðin gildir fyrir Ísland að undanskildum ákvæðum um lifandi dýr, önnur en fisk- og lagareldisdýr og dýraafurðir, svo sem að undanskildum ákvæðum um egg, fósturvísa og sæði.
Markmið reglugerðarinnar er að flytja eftirlitsákvarðanir úr öðrum reglugerðum yfir í eina reglugerð sem geymir allar eftirlitsákvarðanir matvælakeðjunnar í heild sinni. Það leiðir til samræmis á milli málaflokka og öruggara matvælaeftirlits auk þess sem það stuðlar að einföldun. Innleiðing reglugerðarinnar mun fela í sér ávinning með samræmdu eftirlitskerfi fyrir alla matvælakeðjuna, auknu gagnsæi og ábyrgð lögbærra yfirvalda með birtingu upplýsinga um skipulag og niðurstöður eftirlits. Auk þess er markmið reglugerðarinnar að í því skyni að hagræða og einfalda reglur sem lúta að eftirliti sé komið á fót samþættum lagaramma Evrópusambandsins um skipulag opinbers eftirlits og annarrar opinberrar starfsemi innan matvælakeðjunnar. Með innleiðingu reglugerðarinnar í íslenskan rétt mun regluverk fyrir inn- og útflutning verða samfellt, heilsteyptara og einfaldara. Jafnframt felur gerðin í sér meiri sveigjanleika við faggildingu á rannsóknarstofum, öflugri ferla og sterkara eftirlit sem fyrirtæki og eftirlitsstofnanir munu hafa hag af. Það er einnig markmið reglugerðarinnar að tryggja að opinber stjórnvöld Evrópuríkja séu samræmd í störfum sínum og til séu stofnanir, kerfi og aðgerðir til að tryggja að farið sé eftir regluverki á sviði matvæla.
Á meðal helstu breytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu má nefna að opinbert eftirlit skuli almennt fara fram án þess að tilkynnt sé um eftirlitið fyrir fram. Ákvæðið er sett til að viðhalda virkni opinbers eftirlits og gera það markvissara þar sem slíkt eftirlit er talið frekar til þess fallið að ná markmiðum sínum ef ekki er tilkynnt um það fyrir fram. Þá er lagt til að lögfest verði heimild fyrir opinbera eftirlitsaðila til að taka sýni úr vöru sem boðin er til sölu á internetinu eða með annars konar fjarsölu án þess að tilkynnt sé um sýnatökuna fyrr en opinber eftirlitsaðili er kominn með sýnin í sína vörslu. Þannig fá opinberir eftirlitsaðilar heimild til að fá sýni með pöntunum undir nafnleynd.
Einnig er lagt til að við ákvörðun refsinga við brotum gegn ákvæðum laga um matvæli og laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru verði heimilt að ákvarða sekt út frá efnahagslegum ávinningi matvælafyrirtækis eða sem hlutfall af veltu þess ef brot eru framin með sviksamlegum eða villandi viðskiptaháttum.
Nauðsynlegt er að breyta íslenskum lögum til samræmis við ákvæði reglugerðarinnar en með frumvarpinu er ekki gengið lengra en lágmarksákvæði gerðarinnar kveða á um. Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 14. desember nk. Þann dag tekur reglugerð Evrópusambandsins nr. 625 frá árinu 2017 gildi í Evrópusambandinu og er mikilvægt að hún taki gildi í EFTA-ríkjunum á sama tíma.
Virðulegi forseti. Ég hef rakið meginefni þessa frumvarps og vil að öðru leyti vísa til þeirrar greinargerðar sem fylgir því en þar er ítarlega fjallað um efni þess. Að lokinni umræðu hér legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umr. og hv. atvinnuveganefndar til umfjöllunar.