breyting á ýmsum lögum á sviði matvæla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hans á þessu frumvarpi. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra aðeins varðandi þessa breytingu sem varðar Matvælasjóð sem á að fara að stofna og í því samhengi Framleiðnisjóð landbúnaðarins. Ég veit ekki hvort ég skil það rétt, ráðherra leiðréttir mig ef ég hef rangt fyrir mér, varðandi rammasamning sem kallaður er milli bænda og ríkis, sem mér skilst að hefði átt að vera í endurskoðunarferli núna, að það standi jafnvel ekki til að endurskoða þessa hluti: Segjum sem svo að það verði ekki þessi endurskoðun á rammasamningi. Er þá hægt að taka Framleiðnisjóð út úr rammasamningi og færa hann yfir í þennan Matvælasjóð? Ég velti þeirri stöðu fyrir mér þar sem þessi samningur milli ríkis og bænda gildir til 2026 og í viðauka I í töflu í rammasamningi er það skýrt og komið vel inn á skiptingu fjármuna. Það sem mér leikur forvitni á að vita er hvort eða hvernig ráðherra hyggst taka á því. Ef sá grunur sem ég hef er á rökum reistur væri fróðlegt að fá svar við því.