breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar. Frumvarpið er fyrsti liður í aðgerðaáætlun um einföldun regluverks á mínu málefnasviði í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Frumvarpið felur í sér afnám nokkurra opinberra leyfisveitinga sem ekki er lengur talin þörf á að séu til staðar. Þannig er í frumvarpinu lagt til að sérstakri skráningu verslana verði hætt, að leyfi til sölu notaðra ökutækja verði felld brott og að iðnaðarleyfi verði felld brott. Einnig er lagt til að 16 lagabálkar falli brott sem ekki hafa sjálfstætt gildi lengur, að lög um verslunaratvinnu verði að öðru leyti einfölduð og loks að lögum um samvinnufélög verði breytt þannig að heimilt verði að framselja vald ráðherra til að veita undanþágur frá innköllunarskyldu á grundvelli laganna. Þau leyfi sem lagt er til að verði felld niður eru ekki nauðsynleg fyrir opinbert eftirlit eða til að atvinnustarfsemin sem þau taka til geti virkað með eðlilegum hætti í samræmi við þarfir samfélagsins. Um þessa atvinnustarfsemi gilda önnur almenn og nýrri lög sem gilda um alla aðra atvinnustarfsemi og eru mun betur til þess fallin að tryggja þá almannahagsmuni sem stefnt er að. Þær leyfisveitingar sem lagt er til að falli brott eru einnig þannig að í þeim löndum sem við berum okkur saman við eru þær ekki til staðar. Þær fela í sér aukið flækjustig fyrir atvinnulífið umfram önnur lönd. Það er ekki og getur ekki verið markmið okkar að regluverkið hér á landi sé meira íþyngjandi og flóknara en annars staðar.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að ríkisstjórnin muni leggja áherslu á að einfalda regluverk fyrir atvinnulífið og að stjórnsýslan verði að öðru leyti skilvirk og réttlát. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í atvinnuvegaráðuneytinu hafa sett sér aðgerðaáætlanir sem miða að því að regluverkið sem gildir um atvinnulífið og heyrir undir ráðuneytið verði einfaldað eins og kostur sé án þess að það komi niður á öryggi almennings og fyrirtækja.
Ekki er nokkur vafi á því að af mörgu er að taka og frumvarp þetta er aðeins fyrsti liðurinn í þeirri vegferð að búa atvinnulífinu eins gott regluverk og mögulegt er svo kraftar þess fari fyrst og fremst í að framleiða góða vöru og þjónustu og efla samkeppnishæfni sína en ekki í að reyna að synda í gegnum frumskóg regluverksins. Við höfum séð upp á síðkastið að fyrirtæki hafa verið að hætta rekstri eða sameinast í auknum mæli frá því sem var fyrir nokkrum árum. Áberandi er t.d. hversu erfiðlega gengur að reka veitingastaði í miðborg Reykjavíkur þrátt fyrir mikinn fjölda ferðamanna. Ekki er hægt að segja að það sé eingöngu vegna of íþyngjandi regluverks en það spilar sannarlega inn í ásamt öðrum opinberum álögum og gjöldum. Rekstrarumhverfi veitingastaða og annarra fyrirtækja í ferðaþjónustu er til skoðunar í verkefni ráðuneytisins um samkeppnismat sem unnið er af Efnahags- og framfarastofnuninni, OECD.
Verkefnið gengur út á að fara skipulega yfir allt það regluverk sem gildir um tiltekna atvinnustarfsemi og greina það með tilliti til þess hvort það feli í sér samkeppnishindranir eða óþarfa reglubyrði. Þjóðhagslegur ávinningur af því að regluverkið ýti undir samkeppni og sé ekki óþarflega íþyngjandi er mikill. Í samanburði við önnur OECD-lönd kemur þjónustugeirinn hér á landi sérstaklega illa út varðandi reglubyrði og því eru tillögur frumvarpsins að þessu sinni á því sviði.
Aðgerðir til einföldunar regluverks á mínu málefnasviði munu standa yfir til loka þessa kjörtímabils. Auk þess frumvarps sem ég mæli hér fyrir verður horft til þess að einfalda aðgengi fyrirtækja að stjórnsýslunni og að samskipti við hið opinbera geti verið eins mikið á einföldu rafrænu formi og kostur er. Einnig verður horft til þess að einfalda eftirlit og gera það skilvirkara með því að fela faggiltum aðilum framkvæmd þess í meira mæli. Með því er betur hægt að áhættumiða eftirlitið og fella kostnað við eftirlitið á eftirlitsskylda aðila í stað þess að það sé greitt úr ríkissjóði. Þegar samkeppnismati í samvinnu við OECD lýkur á næsta ári munum við leggja til breytingar í takt við þær tillögur sem reynsla OECD frá öðrum löndum gefur til kynna að muni gagnast almenningi og atvinnulífinu.
Virðulegur forseti. Takist okkur að búa atvinnulífinu betra regluverk mun samfélagið í heild sinni uppskera í meiri framleiðni, auknum hagvexti, almennt betri starfsskilyrðum fyrir atvinnurekstur í landinu og aukinni velsæld allra þeirra sem hér búa. Það er markmið sem við hljótum öll að geta verið sammála um.
Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpið gangi til 2. umr. og hv. efnahags- og viðskiptanefndar.