breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar.
Herra forseti. Sá flokkur sem ég sit á þingi fyrir hefur það m.a. á stefnuskrá að minnka báknið og víst er að það hlýtur að vera mjög spennandi að taka þverhandarþykkan bunka af reglugerðum og segjast ætla að henda þeim á bál. En það er eitt í þessu máli sem veldur mér nokkrum áhyggjum og það er hvernig á að fara með sölu á notuðum bifreiðum. Fram yfir árið 1990 ríkti hér óyndisástand í því máli. Menn þurftu ekki löggildingu, þurftu ekki að vera með tryggingu og það óð uppi alls konar svindl og svínarí og viðskiptavinirnir töpuðu. Þó að það sé þannig að ég styðji það eindregið að dregið sé úr flækjustigi þess að koma af stað starfsemi, fyrirtækjum og öðru, hugsa ég líka til viðskiptavinanna sem eiga að eiga viðskipti við þá sem stofna fyrirtæki, þ.e. þeirra hags, þeirra öryggis og þeirra fjármuna. Kaup á bifreið eru í mörgum tilfellum það næststærsta sem venjulegt fólk kaupir, þ.e. á eftir fasteign. Því ríður á að það sé gert á faglegan hátt. Nú skil ég ekki betur, ef ég hef lesið þetta frumvarp rétt, en að nú eigi að afleggja löggildingu því að löggilding bílasala var tekin upp upp úr 1990 af fullgildri ástæðu.
Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé réttur skilningur hjá mér að það eigi sem sagt að afleggja löggildingu, að ekki sé lengur krafa um að sá sem selur notaða bíla sé með starfsöryggistryggingu. Mig langar til að byrja með að fá svör við þessum spurningum.