150. löggjafarþing — 28. fundur,  6. nóv. 2019.

breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar.

332. mál
[17:38]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni þessar spurningar. Ég er fullmeðvituð um að þetta er það atriði sem er umdeilt í frumvarpinu. Ég held að annað sé svo gott sem óumdeilt og rakið. Ég veit að það eru aðilar sem hafa í umsagnarferli sagt sína skoðun á því að þeir styðji ekki þessa tillögu. Við erum hins vegar í dag með til að mynda neytendalöggjöf sem er miklu sterkari en hún var á þeim tíma sem löggildingin var sett á. Í mínu ráðuneyti horfði ég einfaldlega á allt sviðið þegar við stigum þetta fyrsta skref með þessu frumvarpi. Þegar við horfum á Norðurlöndin og fleiri lönd í Evrópu kemur í ljós að þar er svona sala og starfsemi ekki leyfisskyld, hvorki á Norðurlöndunum né í mörgum löndum í Evrópu. Ef neytandi verður fyrir einhverju í slíkum kaupum erum við með almennt umhverfi, við erum með kærunefnd um lausafjárkaup sem allir geta leitað til. Við erum auðvitað með almenna löggjöf eins og ég nefndi, neytendalöggjöf mun sterkari. Við erum með almenna löggjöf um eðlilega og réttmæta viðskiptahætti o.s.frv.

Þegar kaupendur notaðra bíla taka bílalán til að fjármagna kaupin að hluta er bílasalinn í hlutverki lánamiðlara samkvæmt lögum um neytendalán o.s.frv. Ef um er að ræða kaup á nýjum bílum eru umboð og þeir sem þar starfa ekki leyfisskyldir þannig að, eins og ég segi, þetta er auðvitað fyrir nefndina til að fjalla frekar um og ég geri ráð fyrir því að frekari umsagnir berist og að einhverjir gestir muni koma fyrir nefndina. Mitt mat, eftir þá yfirlegu sem farið var í í ráðuneytinu, er að það sé algjörlega réttlætanlegt að fella brott þetta flækjustig og þetta regluverk.