breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar sem sannfærði mig ekki. Það er talað um Norðurlönd, þar er sala notaðra bíla á hendi mjög stórra aðila. Ég veit t.d. að einn stór aðili á Íslandi sendi inn umsögn og sagði: Það þarf ekkert leyfi. Það var stærsta bílaumboðið á Íslandi því að skiljanlega vilja þeir sitja að því að selja sína notuðu bíla sjálfir. Þetta er svolítið öðruvísi í Danmörku því að þeir sem eru að selja þar, þ.e. umboðin sjálf sem eru með þessa notuðu bíla á lager, bjóða ábyrgðir og ég veit ekki hvað, sem ekki er gert hér vegna þess að flóran í bílasölunni í sölu á notuðum bílum er svolítið öðruvísi en þar ytra, sem helgast af því að Danir og Norðmenn, hvor þjóð, eru 15 sinnum fjölmennari en við. Auðvitað er það þannig að smæðin hér á markaðnum skapar þessi skilyrði.
Nú hlýt ég að spyrja: Ef þetta er garðurinn sem fyrst verður ráðist á af hálfu ráðherra Sjálfstæðisflokksins til að einfalda regluverkið, eigum við þá von á því að fasteignasalarnir verði teknir næst og lögmennirnir þar á eftir þannig að hér verði slakað á öllum tryggingum og sagt: Ja, neytendaverndin er orðin miklu betri en hún var hér áður. Það er alveg rétt, hún er það, en ég þori að fullyrða að verði þessi atriði tvö ekki leiðrétt verður hér ekki gott ástand í sölu og kaupum á notuðum bílum. Ég fullyrði það og mér þykir það helvíti hart, afsakið, herra forseti, að menn skuli grípa til svona ráðstafana í einhverjum ímynduðum einföldunarfasa af því að það eru tveir, eins og ég sagði, aðilar að þessum viðskiptum, líka sá sem kaupir. (Forseti hringir.) Ég þori að fullyrða að réttur þeirra er fyrir borð borinn með þessum breytingum.