150. löggjafarþing — 28. fundur,  6. nóv. 2019.

breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar.

332. mál
[17:45]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Það er sagt í málshætti: Ekki veldur sá er varar. Mér er kunnugt um að þeir sem starfa við þann atvinnuveg sem hér er undir og hafa margra ára reynslu hafa varað við þessum breytingum, ekki að ófyrirsynju. Það vill þannig til að sá sem hér stendur er einn af stofnfélögum í því gagnmerka félagi Félag löggiltra bílasala, einn af fyrstu mönnum í stjórn þar. Á sínum tíma, þegar sú breyting var gerð að menn þurftu löggildingu og þurftu að sækja námskeið, gangast undir próf, var það ekki gert að ófyrirsynju. Það var gert vegna þess að viðskiptavinir höfðu tapað ærnum upphæðum, töluverðum upphæðum, á viðskiptum við menn sem höfðu ekki tryggingar og voru satt að segja sumir hverjir ekki fjár síns ráðandi, stofnuðu sem sagt fyrirtæki í röð eftir því sem þau sem eldri voru fóru á hausinn hjá þeim og fólk sem átti viðskipti við þessa aðila, sem voru allnokkrir, varð fyrir verulegu tjóni. Þess vegna var þessi breyting gerð upp úr 1990, ef ég man rétt 1992, að menn þurftu, ef þeir vildu stofna til sölu á notuðum bifreiðum, að sækja námskeið. Þeir þurftu að verða sér úti um bankatryggingu og ef minnið bregst mér ekki var hún þó nokkuð há. Ég held satt að segja að á sínum tíma hafi skaðabótaupphæðin sem tryggingin átti að þekja ekki verið ósvipuð því sem læknir tekur sér. Þannig voru þessar kröfur og eru. Ef það á að strika þetta núna út með einu pennastriki undir því yfirskini að það sé verið að einfalda held ég að menn hefðu getað fundið sér miklu nærtækari liði en akkúrat þetta. Ég óttast mjög að í þessum geira verði núna fram undan að það skapist það villta vesturs ástand sem var hér á árunum fyrir 1990, því miður, og svo ég haldi áfram að spreða spakmælum er það þannig að vestur í Ameríku hafa menn eina reglu: Ef eitthvað er í lagi laga menn það ekki.

Sú breyting sem var gerð þarna upp úr 1990 hefur bara sýnt sig að vera þokkalega góð, hún hefur dugað þokkalega vel — og hvers vegna þá að fikta í henni? Það þarf ekkert að laga það sem er í lagi og þetta er í lagi. Ég vorkenni mönnum ekki neitt sem ætla að stofna til fyrirtækjareksturs og ætla að fara að sýsla með fjármuni annarra að þeir gangist undir lágmarkskröfur. Ég segi lágmarkskröfur því að þetta námskeið sem menn undirgangast og prófið sem þeir taka er fyrst og fremst byggt á þekkingu á samningarétti og skyldum málum þannig að það sé algjörlega ljóst að menn hafi á hreinu hvernig þeir eigi að bera hagsmuni beggja. Oft eru þetta tveir aðilar sem menn eru að þjóna, þ.e. seljandi og kaupandi. Menn verða að hafa það alveg á hreinu að þeir séu að uppfylla hagsmuni hvort tveggja jafnt. Allt tal um að neytendavernd sé orðin meiri nú en var, sem er vissulega rétt, mun ekki duga í þeim tilfellum sem hér eru nú. Hér mun ryðjast fram á völlinn fjöldinn allur af aðilum sem hafa ekki aðsetur fast, munu selja í gegnum netið, þurfa ekki leyfi og uppfylla ekki skilyrði sem eru ekki lengur fyrir hendi. Ég óttast þessa breytingu mjög. Aðilar að viðskiptum eins og svona eru tveir til þrír, sá sem stofnar fyrirtækið og rekur það og það er viðskiptavinur fyrirtækisins, og viðskiptavinir sem geta oft og tíðum í söluferli eins og hér er um að ræða verið nokkrir.

Þetta er fyrir venjulegt fólk líklega næststærstu kaup og sala sem menn fara í. Í þessum viðskiptum er oft og tíðum líka verið að skipta á tveimur eða fleiri bifreiðum og afgangurinn er reiddur fram með fé. Við erum að tala um núna verulegar upphæðir. Í einstökum bílaviðskiptum getum við hæglega verið að tala um upphæðir upp á 25–30 milljónir í hverju einu tilfelli. Ef leyfislaus, tryggingalaus og kunnáttulaus maður á að fara að undirgangast viðskipti af þessari stærð býð ég bara ekki í það, herra forseti. Eins og ég segi aftur er ég alveg sannfærður um að þetta skref sé óheillaskref. Það er í sjálfu sér vont að hin ágætu áform ráðherra Sjálfstæðisflokksins um að grisja reglugerðarskóginn skuli fara af stað með svona kolröngu skrefi, skrefi sem er algjörlega dæmt til að takast ekki. Ég ber þá von í brjósti að viðkomandi nefnd, líklega hv. efnahags- og viðskiptanefnd sem fær þetta frumvarp til meðferðar, kalli fyrir sig fagmenn í þessari stétt, fagmenn með mikla reynslu, og hlusti á vegna þess að á sínum tíma man ég eftir því að þegar t.d. lögin um fasteignasala voru sett var ekki haft mikið samráð þá við þann hóp sem átti síðan að starfa eftir þeim lögum. Það var töluvert basl, ef ég man rétt, að koma þeim lögum í almennilegt horf.

Ég segi aftur að ég held að menn ættu að hlusta eftir röddum úr þessari grein, þeim röddum sem þekkja best til, og taka mark á því sem menn sem eru með áratugareynslu í þessari grein hafa fram að færa. Það getur vel verið að menn hafi farið í þetta af góðum ásetningi og að þeim þyki tilgangurinn góður en ég vildi óska þess að menn hefðu byrjað á einhverju öðru skrefi en þessu, með því væntanlega að rústa ekki svo fjölmennri stétt, löggiltum bílasölum. Ég er ansi hræddur um að þetta muni setja stórt strik í reikning hjá þeim ef þetta frumvarp verður að lögum.

Mér þykir líka virkilega vont ef ráðherra, embættismenn og fleiri sem að þessu hafa komið hunsa algjörlega varúðarorð sem hafa komið úr greininni vegna þess arna. Það þykir mér virkilega vont vegna þess að það er yfirleitt þannig að réttmæt gagnrýni sem er sett fram af þekkingu og á grunni reynslu er oft ólygnust. Það er oft — og ekki bara oft heldur yfirleitt — að menn geta ekki annað en hagnast á því að hlusta á þá sem gerst þekkja til, mesta reynslu hafa og eiga að vinna eftir breyttum lögum áfram. Það verður ekki auðvelt þegar þetta er gengið um garð eins og það er sett fram núna.

Mín von er sú, herra forseti, að hv. efnahags- og viðskiptanefnd hafi vit fyrir hæstv. ráðherra og að nefndin gaumgæfi, alla vega betur en ráðherra og aðrir sem hafa komið að samningu þessa frumvarps virðast hafa gert, þær ábendingar og þær umsagnir sem fram hafa komið og kalli til þá menn sem gerst þekkja til og eiga síðan að starfa að breyttum lögum, taki mark á því sem þeir segja og geri viðeigandi breytingar á þessu frumvarpi. Það er næsta víst að í þeim búningi sem það er í hér og nú mun sá sem hér stendur ekki styðja þetta mál. Það er bara ekki hægt af því að það er svo illa unnið. Ég er hræddur um að afleiðingarnar verði þannig að ég kæri mig ekki um að eiga þátt í að hafa komið slíku á.