breyting á ýmsum lögum varðandi leyfisveitingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framlagningu þessa frumvarps og vildi að við værum sem oftast að ræða frumvörp sem þessi, sem lúta að einföldun regluverks. Ég held að hér séum við að ræða um mjög mikilvægt skref — ég held það ekkert, ég veit það. Ég efast ekki um að margar reglugerðir og mörg lög sem sett hafa verið í gegnum tíðina og ráðherrar atvinnuvegaráðuneytisins hyggjast nú afnema hafi verið sett af góðum vilja og góðum hug og eflaust margar reglugerðir og mörg lög af ákveðinni nauðsyn á þeim tíma en það er líka mikilvægt að endurskoða þetta reglulega. Tímarnir breytast og mennirnir með og lögin þurfa að gera það líka. Ég held að það sem okkur skorti hér einna helst sé að afnema og einfalda, en við erum öllu duglegri við að setja nýjar reglur og ný lög. Ég er sannfærð um að það sé hægt að einfalda mikið þegar kemur að umhverfi fyrirtækja og atvinnulífs hér á landi. Ég minnist þess að í mínu fyrra lífi starfaði ég við að ráðleggja nýsköpunarfyrirtækjum og frumkvöðlum sem voru að stofna fyrirtæki um það hvernig þeir þyrftu að snúa sér. Við á Nýsköpunarmiðstöð vorum með sérstaka töflu yfir það hvers konar leyfi mismunandi atvinnurrekstur þyrfti að sækja um. Mig minnir að sérstaklega lítil en engu að síður mjög merkileg starfsemi eins og hárgreiðslustofa hafi verið með fjölda leyfa sem þurfti að sækja um, bæði til hins opinbera, til ríkis og svo aftur til sveitarfélaga, þannig að ég fagna þessu mjög og held að þetta sé mikilvægt.
Mig langar að hvetja hæstv. ráðherra áfram á þessari vegferð. Það er hægt að stíga enn stærri og meiri skref í þessum efnum. Hér er komið inn á það að þetta er eitt af því sem ríkisstjórnin setti sér sem markmið í sáttmála sínum og að í næstu áföngum aðgerðaáætlunar verði horft til þess að draga enn frekar úr óþarfri reglubyrði, auka rafræna þjónustu hins opinbera þannig að aðilar úr atvinnulífinu geti nálgast þjónustu hins opinbera og sinnt erindum sem beinast að stjórnvöldum á einum stað á netinu. Mig langar í þessu samhengi að nefna að við í hv. efnahags- og viðskiptanefnd fengum kynningu á Stafrænu Íslandi í vikunni og tækifærin þar eru gríðarleg. Það eru fyrst og fremst tækifæri til að veita betri opinbera þjónustu en ekki síður til að hagræða og nýta betur það fjármagn sem fer í ýmiss konar þjónustu.
Ég sit í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og mun þar af leiðandi fá þetta frumvarp til mín. Ég mun að sjálfsögðu skoða það sem hér var rætt á undan um sölu á notuðum bifreiðum. Ég verð að viðurkenna að ég stóð í þeirri meiningu að mikið af þessum viðskiptum væri þegar farið að leita í annan farveg og ætti sér stað manna á millum og í gegnum netið þannig að ég hef fyrir fram ekki miklar áhyggjur af þeirri breytingu sem hér er lögð til. Ég get fullvissað hv. þm. Þorstein Sæmundsson um að við munum að sjálfsögðu fá þá sem til þekkja til okkar í nefndinni og fara yfir þennan þátt. Fyrir fram hef ég engar áhyggjur af því sem er lagt til í frumvarpinu og ítreka bara þakkir mínar og í rauninni frekari hvatningu til ráðherrans um að koma fram með enn fleiri svona frumvörp.