150. löggjafarþing — 29. fundur,  11. nóv. 2019.

varamaður tekur þingsæti.

[15:01]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá starfandi formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Þórarinn Ingi Pétursson, 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, hafi boðað forföll og muni því víkja af þingi sem varamaður fyrir Þórunni Egilsdóttur. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hana 2. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Hjálmar Bogi Hafliðason.