150. löggjafarþing — 29. fundur,  11. nóv. 2019.

leiðrétting á kjörum öryrkja.

[15:10]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingu Sæland fyrir að vekja máls á málefnum öryrkja. Ég heyri það líka að hv. þingmaður vill ekki heyra, eins og hún orðar það, um þær aðgerðir sem nýtast öllum. En það er nefnilega málið. Ég hlýt að segja það enn og aftur: Þær skattkerfisbreytingar sem við ætlum að innleiða, ekki á þremur árum heldur tveimur, munu nýtast tekjulægstu hópunum, bæði öryrkjum og öðrum. Hv. þingmaður verður að sætta sig við það að það mun koma öryrkjum til góða, sú grundvallarbreyting sem við erum að gera á skattkerfinu þannig að skattalækkanir nýtist fyrst og fremst tekjulægstu hópunum. Það mun koma öryrkjum til góða að við erum að auka við félagslegan húsnæðisstuðning. Það nýtist ekki öllum, segir hv. þingmaður. Það þurfa allir þak yfir höfuðið, hvort sem þeir eru öryrkjar eða aðrir. Það mun að sjálfsögðu nýtast tekjulægstu hópunum, öryrkjum og öðrum, að hækka barnabætur sérstaklega og það nýtist öryrkjum sértækt að afnema komugjöld á heilsugæslu og lækka tannlæknakostnað þeirra.

Hafandi sagt þetta þá getum við líka horft á málaflokk öryrkja og við sjáum að þau útgjöld aukast um 20% að raunvirði frá 2017–2020. Þegar við skoðum útgjöld til þessa málefnaflokks sérstaklega, þ.e. málefna öryrkja, sem hlutfall af heildargjöldum má sjá að útgjöldin hafa farið úr 6,7% í 7,5% á þessum sömu árum frá því að núverandi ríkisstjórn tók við. Þetta hlutfall hefur aldrei verið jafn hátt. Við skulum hafa það í huga. Útgjöld á mann, því þetta segir auðvitað ekki allt ef við horfum eingöngu á fjölgunina, hafa líka aukist að raunvirði um 13%.

Hv. þingmaður verður líka að viðurkenna að það sem gert hefur verið nýtist öryrkjum, ekki bara hinar almennu aðgerðir sem svo sannarlega gagnast öllu tekjulágu fólki, heldur líka sértækar aðgerðir í málefnum öryrkja. Það verður að hafa staðreyndirnar undir þegar við ræðum þessi mál.