leiðrétting á kjörum öryrkja.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið en það verður að hafa staðreyndirnar á borðinu. Staðreyndirnar eru nákvæmlega þessar: Það er ákveðinn þjóðfélagshópur hér sem fær ekki sína kjaragliðnun bætta. Það er ákveðinn þjóðfélagshópur sem er að berjast í sárri fátækt. Þó að hæstv. ráðherra vísi í skattalækkunina sem á að flýta til næstu tveggja ára þá breytir það ekki þeirri staðreynd að hún færir þeim einstaklingi sem nú fær rétt um 240.000 kr. útborgaðar rúmlega 8.000 kr. á þessu tímabili. Mun þá hæstv. forsætisráðherra segja að þeir einstaklingar, þó að þeir fengju 250.000 kr. útborgaðar og hefðu í raun ekkert annað að lifa á, glími ekki við fátækt og ekki þurfi að gera meira fyrir þá en þegar hefur verið gert?