Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er einmitt það. Þeir sem sitja eftir í súpunni eru þeir sem síst skyldi, fólk sem er úti á landi, öryrkjar, eldri borgarar sem eiga húsnæði. Þetta eru þeir sem síst geta greitt upp lán og ættu helst að fá tækifæri til að breyta vaxtakjörum. Ég skil ekki að við skulum ekki alla vega reyna á einhvern hátt að koma til móts við þennan hóp. Það er alveg óþolandi að við skulum alltaf vera að búa til tvö mismunandi kerfi í þessu landi, fyrir þá sem eru ríkir og geta bjargað sér og borgað upp lán sín og síðan skiljum við alla hina eftir í súpunni. Það er einmitt það fólk sem þyrfti helst á þessu að halda, að geta annaðhvort greitt upp lánin og fengið ný eða þá a.m.k. að séð yrði til þess að vextir væru lækkaðir þannig að það fengi nákvæmlega sömu kjör og eru á markaði í dag. Ég held að ríkissjóður og ríkisstjórnin ættu að sjá sóma sinn í því að sjá til þess að þessi hópur sitji við sama borð og allir aðrir.