150. löggjafarþing — 29. fundur,  11. nóv. 2019.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

319. mál
[17:23]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara djúpt í efnisatriði frumvarpsins í þessari ræðu minni en mig langar til að fara þess á leit við forseta að fram fari atkvæðagreiðsla í sal um það til hvaða nefndar málinu verði vísað, hvort málinu verði vísað til velferðarnefndar eins og gert er ráð fyrir samkvæmt framsögu hæstv. ráðherra eða hvort málinu verði vísað til umhverfis- og samgöngunefndar í ljósi þess að þar hefur verið fjallað um mannvirkjamál um langa hríð. Það sem ég vil gera með þessu er að það verði a.m.k. meðvituð ákvörðun þingsins til hvaða nefndar málinu verði vísað en að það gerist ekki með tilviljanakenndum hætti.

Við þekkjum auðvitað öll þau sjónarmið sem uppi eru varðandi sameiningu þessara stofnana og fleiri. Skipulagsmálin eru áfram í umhverfisráðuneytinu og til meðhöndlunar í umhverfis- og samgöngunefnd og mjög margir eru þeirrar skoðunar að það hefði þurft að stíga skrefið að fullu þannig að þau mál sameinuðust líka með þessari samtvinnun verkefna. Þá eru a.m.k. Samtök iðnaðarins þeirrar skoðunar að málaflokknum í heild hefði verið betur fyrir komið í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti en í velferðarráðuneytinu, með fullri virðingu fyrir hæstv. ráðherrum beggja ráðuneyta, þetta snýst ekki um það. Ég vil bara að málið þróist ekki með tilviljanakenndum hætti heldur taki Alþingi sérstaka afstöðu til þess hvert málinu verður vísað. Ég fer þess á leit við forseta að greidd verði atkvæði um það í sal hvort málinu verði vísað til velferðarnefndar eða umhverfis- og samgöngunefndar.