150. löggjafarþing — 29. fundur,  11. nóv. 2019.

fjáraukalög 2019.

364. mál
[18:31]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil til að byrja með þakka fyrir að þetta er almennt séð aðeins betur útskýrt hvað varðar tímabundin, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg útgjöld sem ekki er hægt að bregðast við öðrum hætti. Það er bót frá síðasta fjáraukalagafrumvarpi en þó eru þarna nokkur atriði sem þarfnast slíkra útskýringa, t.d. innan málefnasviðs 10 um réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýslu dómsmála. Sú upphæð sem þar kemur fram vegna kirkjujarðasamkomulagsins er ekki beint ófyrirsjáanleg.

Ég vil einnig spyrja ráðherra: Hvar er 30. gr. laga um opinber fjármál um tilfærsluheimildir milli ára í þessu frumvarpi? Það er til að byrja með fullt af svona smáupphæðum sem væntanlega ætti frekar að dekka með varasjóðnum, upp á 5,1 milljarð, sem er að detta niður og koma þá með fjárauka upp á 9 milljarða í staðinn fyrir 20 milljarða. Af hverju er ekki verið að færa þessar smáupphæðir á milli ára eins og 30. gr. gerir ráð fyrir?