fjáraukalög 2019.
Virðulegur forseti. Ég var í hópi þeirra sem voru svo bjartsýnir að telja að fjáraukalög myndu heyra sögunni til með lögum um opinber fjármál, enda væri verið að skerpa verulega á utanumhaldi um rekstur ríkisins og því til viðbótar að leggja til sérstakan varasjóð til að ná utan um óvænt og ófyrirséð útgjöld. Samt sem áður virðist það ætla að verða viðvarandi löstur í rekstri ríkisins að hingað komi fram fjárauki á hverju ári og oft, eins og kom fram í máli síðasta ræðumanns, er um að ræða útgjaldaliði sem hvorki eru óvæntir né ófyrirséðir, t.d. sígilt framlag til þjóðkirkjunnar, sem hefur ítrekað komið fram í fjárauka þó að vitað sé að fjármagn vanti til að mæta þeim skuldbindingum sem þar eru. Engu að síður hefur ekki verið gert ráð fyrir þeim útgjöldum í fjárlögum og ítrekað er komið með þau fram í fjárauka. Þess utan eru auðvitað ýmis smávægileg útgjöld tínd hér til sem eðlilegast hefði verið að tína út af varasjóði en einhverra hluta var vegna ekki gert.
Þetta er vonandi í síðasta skiptið sem við sjáum þessa meðhöndlun á fjáraukalögum, því að það virðist, því miður, sem ekki hafi tekist að ná fram þeirri viðhorfsbreytingu hjá ríkisstjórn eða fjármálaráðuneytinu sem um var rætt með setningu laga um opinber fjármál. En þetta ætti að heyra til algerra undantekninga en ekki vera reglubundinn viðburður hér síðla hausts á Alþingi.
Það sem mér þykir þó ámælisverðast við þennan fjárauka, sem er í sjálfu sér ekkert óvænt, er að búið var að vara ríkisstjórnina við því frá því hún tók við að þær efnahagslegu forsendur sem ríkisstjórnin starfaði eftir væru allt of bjartsýnar. Það hefði verið algjört einsdæmi í íslenskri hagsögu ef íslensk hagsveifla hefði orðið með þeim hætti sem þó var gert ráð fyrir og unnið út frá alla tíð. Það afkomuhögg sem ríkissjóður er að taka á sig á árinu 2019 var algjörlega fyrirséð, og var mjög líklegt að það myndi eiga sér stað og það er mjög lítið að umfangi ef horft er til sögulegra hagsveiflna á Íslandi. Samt virðist ríkissjóður ekki ráða við þetta óverulega högg öðruvísi en með fjárauka, með því að breyta viðmiðum sínum um afkomu í fjármálastefnu ríkissjóðs og með þessum fjáraukalögum undir lok árs, með því að tefla því markmiði um 0,8% óvissusvigrúm sem gefið var í þessum sal í vor í tvísýnu. Fram kemur í máli hæstv. ráðherra að það hafi ekki einu sinni verið kannað hver væri líkleg útkomuspá á afkomu sveitarfélaga á þessu ári, af því að þau þurfa líka að rúmast innan þessa óvissusvigrúms. Hér er gert ráð fyrir því að óbreyttu að afkoma ríkissjóðs verði neikvæð um 0,5% af landsframleiðslu og það er ágætt að hafa það í huga að afkoma sveitarfélaganna á síðasta ári var neikvæð um 0,3% af landsframleiðslu. Það væri óraunhæft að ætla annað en að sú sama niðursveifla og hér er verið að glíma við komi sveitarfélögunum illa í afkomu á þessu ári, þannig að allar líkur eru á því að afkoma sveitarfélaganna verði lakari á þessu ári en á því síðasta. En fjármálaráðuneytið virðist ekki einu sinni hafa haft fyrir því að kanna það. Það á því greinilega að leyfa okkur bara að uppgötva það síðar hvort óvissuviðmiðið hafi verið rofið, hvort afkomuviðmið fjármálastefnunnar hafi verið rofið.
Þetta er algert agaleysi í opinberum fjármálum. Því miður virðist einfaldlega svo vera að þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi staðið að fordæmalausri útgjaldaaukningu kunni hún sér engan veginn hóf áfram veginn og hér sé enn hlaðið í. Sama á reyndar við þegar við tökum til við 2. umr. um fjárlög á morgun fyrir árið 2020, það gætir auðvitað sömu einkenna þar.
En ég vona svo sannarlega að einhver breyting verði á því og að við sjáum raunverulega að ríkisstjórnin geti unnið innan ramma fjárlaga með þeim varasjóði sem ætlað er að brúa bilið varðandi óviss eða óljós útgjöld og að við sjáum einhvern tíma viðbrögð hjá ríkisstjórninni á miðju fjárlagaári, t.d. þegar ljóst má vera að í stefni að afkomumarkmið náist ekki, að gripið verði til einhverra hagræðingaraðgerða. En það er kannski fullmikil bjartsýni að ætla þessari ríkisstjórn slíka ráðdeild í opinberum rekstri.